Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 22
204 TÍMÁRIT MÁLS Ofi MENXINGAI! fer hjá stjórnarvöldunum, hefja þá til vegs, sem eru nógu ómerkilegir eöa þægir þjónar, en útiloka alla og ofsækja, sem þora að koma fram eins og frjálsir menn. Á þennan hátt skal þjóðin alin upp, til auðsveipni og hlýðni, til sleikjuskapar og flærðar, til aðdáunar á heimsku og fláttskap, til lítilsvirðingar á gáfum og hæfi- ieikum. Hvergi lýsir sér skýrar öll þessi niðurlæging en i mati á bókmenntum og skáldum. Það vantar ekki, að nóg sé borið á horð fyrir almenning af svokölluðum skáldskap og þvættingi um skáldskap. En það má hvergi neitt komast að né hljóta viðurkenningu, sem felur i sér listrænt gildi, hressandi andblæ, hugsun, vit eða tilgang. Allur skáldskapur á að vera sauðfrómt and- lejrsi, gyllandi lífslýgi og helzl af öllu eitthvert tauga- styrkjandi Ivf fyrir sjúklinga. Allt er gert til þess að rugla dómgreind manna á bókmenntum. Hvergi á hvggðu hóli þekkjast aðrir eins ritdómar. íslenzkir ritdómar- ar eru aumkunarverð fyrirbrigði. Þeim er haldið i ein- hverri myrkrastofu andlegrar vesalmennsku. Þeir eiga að skrifa auglýsingadóma fyrir útgefendur, gustuka- dóma fyrir kunningja sína, og, þegar tign þeirra nær hæst, áróðursdóma um eitthvert skáldverkið, sem þeirra æðstu yfirboðarar álíta nógu lélegt til þess að megi gylla það fyrir þjóðinni. Ekkert verk er krufið til kjarn- ans. Aldrei lagður mælikvarði bókmenntagildis né lífs- gildis á nokkurt verk í nokkurri alvöru. Það er fvrir- skipun eða þegjandi samtök, að verið skuli á verði gagnvart stórskáldum þjóðarinnar. Mest hætta þvkir stafa af Halldóri Kiljan Laxness. Allir vita, að hann er mesta skáldið, hvort sem þeir vilja kannast við það eða ekki. Hann er hrautryðjandi í íslenzkri skáldsagna- gerð hér heima og er fullkomlega sambærilegur í þeirri grein við þau nútímaskáld, sem skrifa hezt með stór- þjóðunum. Iiann er arftaki þeirra snillinga, sem á öll- lun tímum hafa lialdið hæsl uppi merki íslenzkra hók-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.