Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Blaðsíða 74
Mál og menning.
Hið 25 manna fclagsráð, sem getið var um í siðasta liefti tíma-
ritsins, að tilnefnt hefði verið til að kjósa stjórn Máls og menn-
ingar og semja lög fyrir félagið, kom saman á fund 12. október
síðastliðinn. Voru á þeim fundi gerðar nýjar samþykktir fyrir
Mál og menningu og eru þær prentaðar í heilu lagi hér á eftir.
í félagsráði eru þessir menn:
Aðalsteinn Sigmundsson, kennari,
Arni Friðriksson, fiskifræðingur,
Björn Franzson, fréttaritari,
Eiríkur Baldvinsson, kennari,
Eiríkur Magnússon, kennari,
Erlendur Guðmundsson, skrifstofustjóri,
Guðmundur Thoroddsen, prófessor,
Gunnar Gunnarsson, rithöfundur,
Gunnar M. Magnúss, kennari,
Halldór Stefánsson, rithöfundur,
Haildór Kiljan Laxness, rithöfundur,
Haukur Þorleifsson, aðalbókari,
Jens Figved, framkvæmdastjóri,
Jóhannes úr Kötlum, skáld,
Kristinn E. Andrésson, magister,
Lárus H. Blöndal, starfsmaður Alþingis,
Ólafur H. Sveinsson, forstjóri.
Páll ísólfsson, tónskáld,
Ragnar Jónsson, fulltrúi,
E. Ragnar Jónsson, forstjóri,
Ragnar Ólafsson, lögfræðingur,
Sigurður Nordal, prófessor,
Sigurður Thorlacius, skólastjóri,
Þórbergur Þórðarson, rithöfundur,
Þórhallur Bjarnarson, prentari.
í stjórn félagsins voru kosnir: Kristinn E. Andrésson (formað-
ur), Sigurður Thorlacius (varaformaður), Sigurður Nordal, Hall-
dór Kiljan Laxness og Ragnar Ólafsson, allir án atkvæðagreiðslu.
í varastjórn voru kosnir: Ragnar Jónsson, fulltrúi, og Jens Fig-
ved; endurskoðendur: Haukur Þorleifsson og Sverrir Thorodd-
sen, og til vara Þórhallur Bjarnarson.
Mál og menning gat aðeins gefið út þrjár bækur á þessu ári:
Skapadægur, Rit eftir Jóhann Sigurjónsson, fyrra bindi, og Tíma-
rit Máls og menningar (þrjú hefti). Þetta er minni útgáfa en