Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Blaðsíða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Blaðsíða 9
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 191 „staðin að svikum“, eins og blöðin komust að orði, og urðu mála- lyktir að flokkur sá, sem hún hafði um, sig í Bjarnaborg, var rænd- ur sambandi við annað lif með lögregluvaldi, a. m. k. um stundar- sakir. Mun slík meðferð á trúflokkum vera fátið hér á landi og tæplega meðmælaverð — jafnvel í augum þeirra, sem setja ann- ars andatrú tiltölulega lágt meðal kristilegra sértrúarflokka. Því hvernig á lögregla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sann- leikurinn endar og fölsunin byrjar í trúarbrögðunum? Hitt er athyglivert, að almenningi utan þessa trúflokks, þar á meðal okkar upplýstu dagblöðum, skuli koma það á óvart, að útfrymi Láru og andaraddir hennar skuli ekki hafa verið ekta. Sú undr- un talar sinu máli um islenzka nútímamenntun. En hvað sem útfryminu og andaröddunum líður, og hvaða skoðun sem fóget- inn kann að hafa á þvi máli, þá er þó eitt sem stendur stöð- ugt: hin dularfullu fyrirbrigði kringum „séra Láru“ voru mörg og merkileg. Hið dularfyllsta og merkilegasta má tvímælalaust telja það, að menn, sem bæði eru álitnir með fullri skynsemi og hafa jafnvel fengið háskólamenntun, sækja samkomur af þessu tagi, ekki aðeins af forvitni, heldur sem sanntrúaðir menn. Það er engin skýring tiltæk i fljótu bragði á þvi, að menn, sem lagt hafa stund á ýmsar greinar náttúrufræðinnar, þar á meðal líf- eðlisfræði, sömuleiðis efnafræðingar og eðlisfræðingar, ennfrem- ur raunsæir athafnamenn, og aðrir, sem ekkert er fjær en rugla sarnan náttúrlegu og yfirnáttúrlegu i hversdagslifinu, eru óðfús- ir að gefa út „vísindalegar“ yfirlýsingar um að eftir nákvæmar rannsóknir hafi þeir komizt að raun um, að þessi og þessi mið- ill, þar á meðal Lára, „hafi ekki brögð i tafli“, andarnir séu ekta, hinar og aðrar „sannanir“ hafi átt sér stað, og þar fram eftir götunum. Andleg samsetning slikra manna hlýtur að vera gullvægt rannsóknarefni fyrir sálvísindin. Einnig er það ein- kennilegt að sinu leyti, hvernig vanir raunhyggjumenn, menn, sem hver í sinni grein fyrirlíta kák og flaustur, geta haft sig til að „gera rannsóknir“ í þessum efnum, án þess að kynna sér þær sérstöku starfsaðferðir, sem notaðar eru til að koma upp um miðla, en í þeirri grein eru til slyngir sérfræðingar. Ef mað- ur les i hinu athygliverða riti Harry Price’s, Æfintýri drauga- veiðimanns (Adventures of a Ghost Hunter), kaflann um vinnu- brögðin við „afhjúpun" miðla, rennur upp fyrir manni hver vandkvæði eru á því verki, ekki sízt þar sem miðlar gangast ekki undir rannsóknir, nema þeir fái að setja skilyrði, sem gera alvarlega rannsókn afar torvelda eða jafnvel ógerlega. Þekktur geðveikralæknir kvað hafa haft þau orð í gamni og alvöru um andatrú, að ekki séu aðeins allir miðlar geðbilaðir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.