Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Side 81
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
2GJ
a ð ákveða útgáfustarfsemi félagsins, svo og aðra menningar-
starfsemi, sem rekin kann að verða.
9. gr. Félagsráð skal halda tvo fundi árlega, — að vori, og:
er sá fundur aðalfundur, og að hausti til undirbúnings útgáfu-
starfsemi næsta árs.
Ennfremur er stjórninni heimilt að kveðja félagsráð til fund-
ar, er henni þykir við þurfa og skylt ef 5 fulltrúar, hið fæsta,
krefjast þess og taka til fundarefni.
Hafi stjórnin ekki kvatt til fundar innan 10 daga, geta full-
trúar sjálfir kallað saman fund.
10. gr. Félagsráð skal kvatt saman til funda með minnst 5 daga
fyrirvara. Stjórn félagsins skal boða fulltrúa til fundar með þeim
hætti, að sannanlegt sé. í fundarboði skal getið dagskrár.
11. gr. Fundur i félagsráði er lögmætur, ef helmingur fulltrúa
mætir.
Afl atkvæða ræður úrslitum, nema öðruvísi sé ákveðið í sam-
þykktum þessum.
12. gr. Fundum félagsráðs stjórnar kjörinn fundarstjóri o&
kveður hann til fundarritara.
Umræður og atkvæðagreiðslur fara fram eftir því sem fundar-
stjóri ákveður.
Atkvæðagreiðsla skal þó jafnan fara fram skriflega, ef einhver
fundarmaður krefst þess.
13. gr. Á aðalfundi fálagsráðs skal árlega kjósa 5 menn í stjórn
félagsins. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega.
I varastjórn skulu kosnir tveir menn.
Enn fremur skal kjósa tvo endurskoðendur og einn til vara.
Ivosning fer fram skriflega að framkomnum uppástungum.
14. gr. Stjórnin skiptir með sér verkum. Varamenn taka sæti
i stjórn í forföllum aðalmanna og skulu kvaddir til starfa i þeirri
röð, sem þeir voru kosnir í.
15. gr. Stjórn félagsins hefur á hendi daglegar framkvæmdir
félagsins, með aðstoð ráðinna starfsmanna.
Stjórn félagsins skuldhindur það út á við og er undirskrift 3
stjórnarmanna skuklbindandi fyrir félagið.
Stjórnin hefur heimild til að taka lán fyrir félagið og veðsetja
eignir þess. Hún skal og ráða félaginu starfsmenn.
16. gr. Stjórnin skal leggja fyrir aðalfund til úrskurðar endur-
skoðaða reikninga félagsins.
Reikningarnir ásamt athugasemdum endurskoðenda skulu hafa
legið frannni viku fyrir aðalfund.
17. gr. Endurskoðendur skulu yfirfara bækur félagsins og gjöra
athugasemdir við allt, sem þeir finna athugavert. Þeir skulu jafn-