Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 8
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR unz allir stjórnmálaflokkar á íslandi hafa tileinkað sér það grundvallarsið- gæði að ljá aldrei máls á afsali ís- lenzkra landsréttinda, hvorki í þágu hernaðar né í neinum öðrum tilgangi. Barátta vor skal hér eftir sem hing- að lil vera hugrökk og falslaus. Vér skulum ekki óttast neitt -— aðeins standa fast saman um hvert það tæki- færi sem þokar oss áleiðis að mark- inu. Vér skulum ekki óttast skoðana- ágreining vorn í öðrum efnum. Vér skulum ekki óttast ögrun andstæð- ingsins þegar hann hrópar: kommún- isti! hrúsaskeggur! Vér skulum ekki óttast þá raunsönnu skilgreiningu að samtök voru séu hápólitísk — meira að segja heimspólitísk, enda þótt þau séu ekki flokkspólitísk. Að þau séu einmitt tilraun til að lyfta íslenzkri stjórnmálabaráttu á hærra stig: upp- ræta siðspillta hagsmunabaráttu með heiðarlegri hugsjónabaráttu. Að þau séu tilraun til að búa íslendingum veglegri og öruggari stað á vettvangi heimsmálanna en verið hefur um hríð. Að þau séu vort litla lóð á meta- skálar friðar og stríðs, lífs og dauða, bæði hér á landi og hér á jörðu. Eg hygg að það sé algert einsdæmi á þessu landi sem gerzt hefur síðan undirbúningur Keflavíkurgöngunnar hófst. Um hábjargræðistímann, allt liðlangt sumarið, hafa stjórnendur og sjálfboðaliðar lagt nótt við dag á að- alstöð samtakanna í höfuðstaðnum, en aðrir ferðazt um þvert og endi- langt landið til fundahalda. Þannig hefur tekizt að mynda lifandi sam- band milli hernámsandstæðinga í öll- um héruðum og bæjum landsins sem nú hafa með ærnum tilkostnaði sent fulltrúa sína á þennan nýja Þingvalla- fund. Árangurinn hefur orðið sú fast- mótaða þjóðfylking sem hér hefur verið stofnuð, þau baráttuform sem hér hafa verið ákveðin og sá sigur- vilji sem hér hefur verið samkveiktur í einn loga. Þessum fundi er nú að ljúka. Mér hefur fundizt fagnandi andi lýðveldis- hátíðarinnar fyrir sextán árum svífa hér yfir vötnunum. Það er ósk mín að öll barátta vor verði framhald þeirrar liátíðar, unz brautin er brotin til enda og helskýinu mikla á brottu svipt. Vér skulum að vísu ekki ofmetnast af því lífsnauðsynlega verki sem þeg- ar hefur verið unnið. Eigi að síður hlýt ég að vera stoltur í mínu hjarta á þessari stundu, þegar ég hugleiði fórnirnar sem færðar hafa verið af því hikleysi og drenglyndi sem heil- agur málstaður einn fær tendrað. En jafnframt get ég fullvissað alla þá sem hér hafa að unnið, að erfiði þeirra mun verða þeim sjálfum ylgjafi og manndómsgjafi meðan líf endist. Eg leyfi mér persónulega og í nafni feðra vorra og niðja að þakka hverj- um þeim manni og konu, ungum og gömlum, sem lagt hafa málefni voru heilshugar lið, meira eða minna, eftir getu og aðstæðum. Ég ætla ekki að 246
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.