Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Side 28
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR þeir voru a. m. k. jafnokar Banda- ríkjamanna sem hermenn. Kóreu- stríðið sýndi líka ljóslega að Banda- ríkjamenn stóðu pólitískt verr að vígi en þeir sjálfir og margir aðrir höfðu haldið. Bandamenn þeirra lögðu þeim svo að segja ekkert lið. Kóreu- stríðið var því að mestu einvígi rnilli Kína og Bandaríkjanna takmarkað við Kóreu. Þegar svo vopnahlé var samið stóð allt við það sama og áður. Um þessar mundir gjörbreyttist stefna Bandaríkjamanna gagnvart Japan. Nú var það öllu öðru nauðsyn- legra að afla sér þar vina og banda- manna og skerða vald og áhrif and- stæðinganna. Rétt áður en Kóreu- stríðið hófst — í júní 1950 — fór Mac Arthur að þrengja að kommún- istum, en frá 1946 höfðu þeir getað starfað frjálslega í Japan eins og aðr- ir stjórnmálaflokkar. Farið var að lianna þeim fundahöld og handtaka forystumenn þeirra, og skömmu eftir að stríðið skall á voru öll blöð þeirra bönnuð. Jafnframt var farið að und- irbúa friðarsamning við Japana og varnar- og öryggissáttmála milli þeirra og Bandaríkjamanna. Friðurinn var saminn í San Fran- cisco 1951, 22.—29. sept. — Þar voru saman komnir fulltrúar allra þeirra ríkja, sem átt höfðu í ófriði við Japan — Chang Kai Shek en ekki Kínverska alþýðulýðveldið átti þar fulltrúa. Truman forseti varþar sjálf- ur og talaði fyrir hönd Bandaríkj- anna. Taldi hann fram það sem áunn- izt hefði á undanförnum 6 árum; Jap- an væri nú, sagði hann, orðið allt annað land en áður, þó ekki fyrst og fremst vegna tilskipana hernámsyfir- valdanna heldur samkvæmt vilja yfir- gnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Leynilögregla og lögregluríkisaðferð- ir fyrri stjórna væru nú úr sögunni. Nú fyrst nyti þjóðin almenns kosn- ingarréttar og allra mannréttinda. Auðhringarnir væru brotnir á bak aftur og 5 milljón ekrur lands komn- ar í eigu vinnandi bænda. Allt væri nú á góðum vegi til farsældar og vel- megunar. Bandaríkin, Bretland og fylgiríki þeirra áttu frumkvæðið að friðar- samningi þessum, en Ráðstjórnarrík- in o. fl. vildu ekki ganga að honum nema með miklum breytingum. Aðal- fulltrúi Rússa þar, Gromyko, taldi að í samningnum fælist engin trygging gegn endurreisn hernaðarstefnunnar í Japan. Samningurinn ryddi veginn fyrir þátttöku Japana í hernaðarsam- tökum undir forystu Bandarikjanna. Afhending Ryukyu-eyja og Bonin- eyja til Bandaríkjanna taldi hann andstæða lögum Sameinuðu þjóð- anna — samningurinn væri ógildur án samþykkis Rússa og Kínverska al- þýðulýðveldisins; hinn eiginlegi til- gangur hans væri að binda Japan í hernaðarsamtök við Bandaríkin, sem þar réðu öllu; en samtökum þessum 266
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.