Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Blaðsíða 24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
mála við Ráðstjórnarríkin, sem nú
vissu að árás Þjóðverja var yfirvof-
andi og urðu fegin að geta komizt hjá
ófriði í Asíu.
Griðasáttmálinn við Rússa styrkti
og mjög aðstöðu Japana í Austur-
Asíu, og gerðust þeir þar ágengari en
nokkru sinni fyrr. Með samningum
við Vichystjórnina náðu þeir tangar-
haldi á Indókína og 7. des. 1941 hófu
þeir styrjöld við Bandaríkin með því
að ráðast á mikilvægustu flotastöð
þeirra við Kyrrahaf, Pearl Harbour á
Havaii. Tókst þeim þar að koma
Bandaríkjamönnum á óvart og valda
miklum skemmdum á flota þeirra.
Þessi atburður var einn hinn örlaga-
ríkasti í sögu heimsstyrjaldarinnar
síðari. Nú voru bæði Japanar og
Bandaríkjamenn orðnir beinir aðilar
að henni, svo og Kínverjar.
Þessi mikla styrjöld, hin mesta sem
Japan hefur nokkru sinni háð, endaði
með skelfingu. Síðasti þátturinn var
kjarnorkusprengingarnar íHiroshima
og Nagasaki. Síðan skilyrðislaus upp-
gjöf. Draumurinn um heimsveldi í
Austur-Asíu undir forystu Japana var
þar með búinn. Þeir urðu að láta af
hendi öll sín lönd að Japanseyjum
sjálfum undanskildum. Andstæðingar
þeirra tóku allt landið herskildi; réðu
Bandaríkjamenn þar einir öllu, enda
þótt Bretar og Kínverjar tækju ofur-
lítinn þátt í hernáminu.
Með þessum atburðum var brotið
blað í sögu japönsku þjóðarinnar.
Aldrei áður höfðu erlendar þjóðir
tekið land hennar herskildi. Nú í
fyrsta sinni varð hún í einu og öllu
að hlíta hoði og banni sigurvegar-
anna. Hernaðarsinnar í Japan höfðu
líkt og nazistar í Þýzkalandi ætlað að
gera jijóð sína að yfirþjóð, en árang-
urinn varð sá, að þjóðin sjálf lenti
undir þrældómsok sigurvegaranna og
var algerlega upp á miskunn þeirra
komin. Herforingjar og auðkýfingar
í Japan höfðu leitt yfir þjóð sína þá
mestu ógæfu, sein nokkru sinni hefur
yfir hana dunið.
Áður en Japan gafst upp höfðu
sigurvegararnir ráðið það með sér,
að gerbreyta stjórnarfari og efna-
hagslífi landsins. Það átti að gera
þjóðina að friðsamlegri lýðræðis-
þjóð, refsa stríðsglæpamönnum,
leysa upp hina miklu auðhringa —
höfuðstoð hernaðarstefnunnar —
leysa upp herinn og afnema her-
gagnaiðnaðinn. Einn af helztu hers-
höfðingjum Bandaríkjanna, Mac
Arthur, var gerður að landsstjóra í
Japan og átti að stjórna þar öllum
framkvæmdum; þó með ráði nefnd-
ar, er skipuð var fulltrúum sigurveg-
aranna. Var því næst hafizt handa um
hinar fyrirhuguðu breytingar. Ný
stjórnarskrá var sett 1946, mjög lýð-
ræðisleg. Keisaradæmið var látið
haldast að forminu til, en staða keis-
arans var lík og þjóðhöfðingja í lýð-
ræðislöndum. Stjórnarskrá þessi er
262