Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Blaðsíða 94
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
dráttum og hafa það hlutverk að lýsa
sögu byltingarinnar. Yfirnáttúrlegur
kraftur, sem dregur saman í óendan-
lega stóra mynd af sorg þjóðarinnar
unglinga og hokna öldunga, viðstadda
og fjærstadda, rússa og kalmika. Og
að lokum óvænt upphafning, þegar
skáldið mitt í gráti þúsundanna finn-
ur styrk sinn og gæfu í því að hann er
„öreind þessa afls“, — ekki aðeins í
sorg eftir mikinn mann, heldur og til
mikilla framtíðarverka.
Upp af öllum þessum ólíku þáttum
rís mynd Lenins, hins snjallasta allra
byltingarmanna, og liver lína þessa
mikla kvæðis bætir nýjum pensil-
drætti í þessa mynd, gengur upp í
hana, einatt á furðu óvæntan og duttl-
ungafullan hátt eins og í lífinu sjálfu,
en samt með óútskýranlegri og óbif-
anlegri rökvísi hins fullkomna.
IX
IJegar skáldið Esénín framdi sjálfs-
morð árið 1924, skrifaði hann á vegg-
inn í dauðaherbergi sínu: „I þessum
heimi er ekkert nýtt að deyja, en það
er vissulega ekkert nýrra að lifa.“
Majakovskí skrifaði ljóð „til þess að
lama áhrif síðustu hendingar Éséníns,
til að svipta dauða Éséníns öllum
töfrum, til að sýna í stað auðveldrar
fegurðar dauðans aðra fegurð þar eð
við þurfum allt afl okkar til að hjálpa
alþýðu heimsins í þeirri hyltingu sem
hafin er“ (greinin Hveniig yrkja
skal I. Dánarorðum Éséníns svarar
Majakovskí í lok kvæðisins:
Reikistjarna okkar
er lítt útbúin
til gleðskapar
Við' verðum
að hrifsa gleði
úr höndum komandi daga
t þessu lífi
er ekki erfitt
að deyja
að skapa líf
er sýnu erfiðara.
Já það er erfitt að skapa nýtt líf.
Majakovskí lagði fram alla sína
krafta til þess að hugsjónir byltingar-
innar mættu rætast og rætast sem
fyrst, það höfum við þegar talað um.
Og Majakovskí vissi að „gríðarmikið
starf verður unnið — og er unnið nú
þegar“ (kvæðið Samtal viS Lenínj.
En hann var maður óþolinmóður.
Það sést á mörgum kvæðum hans, að
hann hefur ekki haft sérlega þungar
áhyggjur af efnahagslegum framför-
um í landinu og þar með bættum lífs-
kjörum. Það hefur gengið að vonum
að hans dómi. Það sem honum þvkir
auðsjáanlega verst er að áhrif hinnar
sósíalistísku hugsjónar eru ekki nógu
sterk til að breyta mönnunum á stutt-
um líma, að það er of mikið um
eigingirni, kaldlyndi, hræsni, srnekk-
leysi í hinu unga ríki sósíalismans.
Allir þessir bölvaldar og reyndar
margir fleiri sameinast í verkum
332
V