Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 35
ÍIENRI ALLEG
Rannsóknin
(La Question)
(Frásögn sú sem hér fer á eftir kom á prent í febrúar 1958, útgefandi Editions de
Minuit, París. Kverið var að vísu gert upptækt nokkrum vikum síðar, en þá höfðu þegar
selzt 60.000 eintök; síðan hafa verið prentaðar nýjar útgáfur, sem hafa verið látnar af-
skiptalausar af yfirvöldunum. La Question, eins og frásögnin heitir á frönsku, hafði þegar
síðast fréttist verið þýdd á sautján tungumál.
Iföfundur frásagnarinnar, Henri Alleg, er Alsírbúi. lfann er félagi í kommúnistaflokki
Alsír og var frá 1950 til 1955 ritstjóri blaðsins Alger Républicain. Kommúnistaflokkur
Alsír var bannaður árið 1955, og um leið var útgáfa blaðsins stöðvuð með valdboði. Alger
Républicain var, samkvæmt útgefendum Rannsóknarinnar, eina dagblaðið f Algeirsborg
sem var „opið öllum lýðræðislegum og þjóðlegum alsírskum skoðunum". Það sem eftir
var ársins 1955 og fram á árið 1956 lét Henri Alleg ekkert ógert til að fá útgáfubanninu
aflétt, tók sér meðal annars nokkrum sinnum ferð á hendur til Parísar að tala máli blaðs-
ins við þáverandi ráðherra.
I nóvember 1956 er hinsvegar gefin út handtökuskipun gegn Alleg og fleiri starfsmönn-
um blaðs hans. Eftir það fer hann huldu höfði unz hann er handtekinn, í júní 1957. Þá
hefst frásögn hans. —
Orlög Henri Allegs eru í hugum almennings víða um heim ekki aðgreind frá örlögum
vinar hans Maurice Audins. Maurice Audin var kennari í stærðfræði við háskólann í
Algeirsborg, félagi í kommúnistaflokki Alsír eins og Alleg. Hann var handtekinn degi fyrr
en Alleg, eins og hinn síðarnefndi skýrir frá. Samkvæmt herstjórninni í Alsír tókst honum
að flýja úr höndum fallhlífahermannanna 21. júlí, þegar þeir voru að flytja hann í bíl
milli bækistöðva. Sú saga virtist þó ótrúleg, menn ráku sig á ýmiskonar ósamkvæmni og
veilur í skýrslum liðsforingjanna um atburðinn. Innan skamms barst sá kvittur út að
Audin hefði verið pyndaður og í rauninni látizt í höndum pyndaranna; síðan hefði „flótt-
inn“ verið settur á svið, jafnvel fenginn hermaður til að leika hlutverk Audins og hlaupa
úr jeppanum þegar hann hafði stöðvazt vegna lítilsháttar „bilunar“.
,Þella mál vakti þegar mikla ólgu í Frakklandi, og einkum meðal háskólakcnnara.
Audin var sýndur sá óvenjulegi heiðursvottur að doktorsritgerð hans, sem hann hafði
lokið við að mestu fyrir handtökuna, var tekin gild til varnar við vísindadeild Parísar-
háskóla, að honum horfnum, í desember 1957. Um sama leyti var stofnuð meðal háskóla-
manna „Maurice-Audin-nefndin“, sem síðan hefur unnið að því að upplýsa málið og
krafizt þess að böðlar Audins yrðu látnir sæta ábyrgð og dregnir fyrir dómstóla. Dóms-
TÍMARIT MÁLS OC MENNINCAR
273
18