Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Síða 41

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Síða 41
RANNSÓKNIN „Stórkostleg veiði,“ sagði hann og klippti sundur orðin. „Það er Henri Alleg, fyrrverandi ritstjóri við Alger Républicain“. Og þvínæst beindi hann umsvifalaust máli sínu til mín: „Hjá hverjum búið þér?“ „Það segi ég yður ekki.“ Hann brosti og yppti öxlum, þvínæst sagði hann, mjög sjálfsöruggur: „Við höldum yfir yður dálitla yfirheyrslu rétt bráðum og hún verður nóg fyrir yð- ur. Þér skuluð svara, ég lofa yður því. Handjárnið hann.“ Fallhlífarhermaðurinn leiddi mig niður þrjár hæðirnar og út á götu. Bifreið undirforingjans beið okkar hinumegin við götuna. Ég var látinn setjast afturí. Fallhlífarhermaðurinn sat við hlið mér. Hlaupið á vélbyssu hans snerti síðu mína: „Það er góð hrúga í þessari, ef þér ætlið eitthvað að derra yður.“ Við ókum upp í borgina, þangað sem hæst ber. Eftir stuttan stanz fyrir framan hús nokkurt, sem Cha.. . fór einn inn í, héldum við áfram hærra í átt- ina að Chateauneuf, eftir Clemenceaubólvarði. Að lokum nam bifreiðin staðar handan við torgið hjá El-Biar, fyrir framan stórbyggingu i smíðum. Ég fór um húsagarð, þar sem fullt var af jeppum og herbílum, og kom að innganginum í ófullbyggða húsið. Ég fór upp stigann: Cha... var á undan mér, fallhlífarhermaðurinn á eftir. Steypustyrktarjárn gægðust hér og þar út úr veggjum. Það var ekkert handrið á stiganum. Niður úr gráu loftinu löfðu rafmagnsþræðir, sem komið hafði verið fyrir í fljótheitum. Allsstaðar á leiðinni var sífelldur straumur fallhlífarhermanna, sumir á leið upp, aðrir á leið niður. Þeir hröktu á undan sér múhameðstrúarmenn, tötrum klædda fanga með margra daga skegg á vöngum. Var þarna mikið stígvéla- hark, hlátrasköll, grófyrði og svívirðingar. Ég var í „skipulagsstöðinni í undir- deild Bouzaréah". Ég átti fljótt eftir að kynnast því hvernig þessu „skipulagi“ var háttað. Ég fór á eftir Cha. . . inn í stórt herbergi á þriðju eða fjórðu hæð: dagstof- una í þessari tilvonandi íbúð. Nokkur borð, sem hægt var að fella saman, á veggjum undnar myndir af eftirlýstum mönnum, bráðabirgðasími: þetta voru allir innanstokksmunirnir. Við gluggann stóð undirforingi. Ég komst fljótlega að því að hann hét Ir.. . Hann var mikill vexti eins og björn, líkaminn alltof stór fyrir þetta litla andlit, augun eins og í barni sem hefur ekki strokið burt stírurnar, of stór fyrir þessa mjóu og hvellu rödd, sem kom úr munni hans, en hann var sleikjulegur í máli og smámæltur eins og illa innrættur kórdrengur. „Við ætlum að gefa yður tækifæri,“ sagði Cha..., og sneri sér að mér. „Hér er pappír og blýantur. Þér segið okkur hvar þér eigið heima, hver hefur hýst 279
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.