Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR yður síðan þér fóruð í felur, hvaða fólk þér hafið hitt, hvað þér hafið haft fyr- ir stafni ...“ Hann talaði í kurteislegum tón. Handjárnin höfðu verið leyst af mér. Eg endurtók fyrir undirforingjana báða það sem ég hafði sagt við Cha. .. meðan við ókum í bílnum: „Ég fór í felur til þess að verða ekki handtekinn, því að ég vissi að ég gat átt von á fangelsisvist. Ég starfaði þá og starfa enn í þágu blaðs míns. I því sambandi hef ég átt tal við Guy Mollet og Gérard Jacquet í París. Meira hef ég ekki að segja ykkur. Ég skrifa ekki neitt og þið skuluð ekki setla að ég segi til þeirra sem hafa haft djörfung til að hýsa mig.“ Foringjarnir litu hvor á annan. Þeir voru síbrosandi og sjálfsöruggir. „Ég held að það sé ekki til neins að tefja tímann,“ sagði Cha. .. — Ir... var á sama máli. í rauninni var ég einnig sama sinnis: ef átti að pína mig, hverju skipti þá hvort það varð fyrr eða seinna? Og það var betra að mæta því versta undireins heldur en að bíða eftir því. Cha. .. tók símatólið: „Undirbúið starfssveit. Það er fyrir ,,stórlax“. og segið Lo.. . að koma upp.“ — Eftir örskamma stund kom Lo. . . inn í herberg- ið, tuttugu og fimm ára, lítill, dökkur á hörund, bjúgnefjaður með lágt enni. Hann gekk til mín og sagði brosandi: ,,A! — Það er hann, sem er viðskipta- vinurinn! Komið með mér!“ Ég gekk á undan honum. Á næstu hæð fyrir neð- an fór ég inn í lítið herbergi vinstra megin við ganginn: eldhúsið í tilvonandi íbúð. Þar var vaskur, kolaeldavél, en fyrir ofan hana reykhlíf, sem ekki var enn búið að ganga frá, það var aðeins búið að koma fyrir málmgrindinni. Á innsta veggnum var dyragluggi falinn bak við bættan pappa. Var því rökkur í herberginu. „Afklæðið yður,“ sagði Lo. . ., og þegar ég hlýddi ekki: „Ef þér viljið ekki hlýða, verðið þér afklæddur með valdi.“ Á meðan ég fór úr fötunum voru fallhlífarhermenn stöðugt á ferðinni í kringum mig og á göngunum, forvitnir að sjá „viðskiptavin“ Lo. . . Einn þeirra, Ijóshærður maður sem talaði með Parísarhreim, stakk höfðinu inn um rúðulausan rammann á hurðinni: „Nú, það er Frakki. Hann hefur gengið í lið með rottunum á móti okkur? Þú ætlar að sjá um hann, ha!, Lo. . .!“ Lo. . . lagði nú á gólfið svarta viðarplötu, gegnsósa af vatni, skítuga og límkennda eftir spýjur, sem aðrir „viðskiptavinir“ höfðu vafalaust skilið þar eftir. „Jæja, leggizt þér!“ Ég lagðist á plötuna. Með aðstoð annars manns reirði Lo.. . úlnliði mína og fótleggi með leðurólum, sem festar voru í plötuna. Ég sá Lo. .. standa yfir mér klofvega, fæturnir sinn hvoru megin við plötuna, á 280
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.