Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 46
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR var fokvondur. Þetta tók of langan tíma. ..Heyrðu, fanturinn þinn! Þú ert bú- inn að vera, nú talarðu! Heyrirðu það, nú talarðu." Andlitið á honum var svo fast upp við andlit mitt að það næstum kom við mig. Og hann æpti: ,,Þú skalt tala! Hér verða allir að tala. Við höfum barizt í Indókína og síðan þekkjum við ykkur. Hér er Gestapo! Þekkirðu Gestapo?“ Þvínæst hæðnislega: „Þú hefur skrifað greinar um pyndingar, ha, hundur? Jæja, nú er það 10. fall- hlífadeildin sem framkvæmir þær á þér.“ A bak við mig heyrði ég hlátur pyndaranna. Ir. . . lét löðrungana dynja á andliti mér og rak hnén í magann á mér. „Það sem gert er hérna verður líka gert í Frakklandi. Vinir þínir, Du- clos og Mitterand, eiga eftir að fá sömu útreið og þú, og lýðveldispútan þín verður sprengd í loft upp líka! Þú skalt tala, það læt ég þig vita.“ Á borðinu var hörð pappapjatla. Hann tók hana og notaði til að berja mig. Það dró meira og meira af mér við hvert högg, en um leið styrktu þau mig í þeirri ákvörðun minni að gefast ekki upp fyrir þessum hrottum, sem hældu sér af að vera keppinautar Gestapo. „Allt í lagi,“ sagði Cha.. . „þú getur sjálfum þér um kennt. Það verður þá að láta villidýrin um þig.“ „Villidýrin11 voru þeir, sem ég hafði þegar kynnzt, en áttu nú eftir að sýna betur snilli sína. Ir... dró mig inn í hitt herbergið, þar sem platan var og rafkveikjan. Um leið og ég kom inn var múhameðstrúarmanni sparkað á fætur og hann rekinn út á ganginn. Á meðan Ir.. ., Cha. . . og þeir félagar sáu um mig, hafði hinn hlutinn af flokknum haldið áfram „starfi“ sínu við plötuna og kveikjuna. Þeir höfðu „yfirheyrt“ annan fanga til að sóa ekki tímanum. Lo. .. fjötraði mig við plötuna. Síðan byrjuðu nýjar rafmagnspyndingar. „Þetta er hún stóra okkar,“ sagði hann. í höndum kvalara míns sá ég stærra tæki, og sársaukinn varð nú öðruvísi en áður. í staðinn fyrir hina logsáru og tíðu stingi, sem virtust ætla að rífa hold frá beinum, náði sársaukinn nú víðar um líkamann, læsti sig um hvern vöðva, dýpra og lengur. Eg hnipraðist sam- an í böndunum, beit fast í klæðið og hafði augun lokuð. Þeir létu staðar num- ið, en ég hélt áfram að skjálfa og nötra. „Kanntu að synda?“ sagði Lo.. . og hallaði sér yfir mig. „Við skulum kenna þér það. Svona, undir kranann með hann!“ Þeir lyftu upp plötunni, sem ég lá bundinn á, og færðu mig þannig yfir í eldhúsið. Þegar þangað var komið, lögðu þeir þann enda plötunnar, sem höf- uðið hvíldi á, yfir vaskinn. Tveir eða þrír fallhlífahermenn héldu undir hinn endann. Engin birta var í herberginu önnur en sú, sem barst utan af ganginum. í rökkrinu greindi ég Ir..., Cha... og De... kaptein, sem virtist hafa tekið að 284
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.