Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 61
NOLDUR Eins og ég hef margoft sagt þér, ég væri búinn að höggva þær fyrir löngu ef ég mætti ráða. Þessi kvikindi, sem aldrei gera annað en skemma og eyði- leggja, bætti hann við fyrirlitlega. Konan tók upp netaflækju, sem lá þarna og hún hafði greitt úr áður og notað til að láta yfir götin, skar nú aftur úr henni bút og hnýtti möskvana saman við stutta endann. Maðurinn stóð yfir henni og horfði á. Ætli þú sért samt ekki nógu feginn að éta úr þeim eggin, enda þótt þú nenn- ir aldrei að gera neitt fyrir þær. Þegar hún var búin að hnýta möskvana saman, breiddi hún úr því og lagði ofan á það spýtu og ofan á spýtuna nokkra steina. Hvaða egg? sagði maðurinn. Ef þær verpa eitthvað, þá éta þær það marg- falt upp í fóðrinu. Það er nú ekki svo mikið fóður sem þær fá. Ég veit ekki hvað ætti að gera við ruslið ef við hefðum ekki þessar hænur. Einhvernveginn held ég nú að maður kæmi því í burt. Maðurinn gekk nokk- ur skref aftur á bak. Það er ekki það að ég sjái eftir fóðrinu í þær ef þær verptu, en þær verpa bara ekki mestan hluta ársins. Konan svaraði ekki strax og gekk fram hjá honum og fyrir stíuna og horfði á netið, sem hún hafði skilið við. Það var ennþá of stutt. Það getur vel verið að jjær verpi ekki mikið greyin, enda ekki von, jiar sem aldrei er gert neitt fyrir þær. Hvorki við kofann þeirra né stíuna. Og þú tímir ekki einu sinni að hafa ljós hjá þeim í svartasta skammdeginu. Mér kemur ekki til hugar að eyða ljósi á varplausar hænur. Maðurinn ókyrrðist. Konan hnussaði: Ætli þig munaði samt ekki um eggin þeirra ef þú ættir að kaupa þau. Mér finnst þú ekki vera svo ör á peningana þína. Nema kannske við sjálfan þig. Hún gekk nú aftur fyrir stíuna og lók upp netaflækjuna og athugaði. Þú veizt ósköp vel að ég borga það, sein mér ber að borga. Og ef ég held í peningana, þá er jjað ekki mín vegna, heldur alveg eins vegna þín. Jafn mikið og ég eyði á sjálfa mig, sagði konan fyrirlitlega. Svona taktu hérna í endann og hjálpaðu mér að greiða úr þessu. Hún rétti manninum hinn enda flækjunnar og tók að hrista hana. Hættu þessu hristi, sagði maðurinn. Þau þögðu um stund. Maðurinn ræskti sig: Ég vildi heldur kaupa egg en þurfa að eyða tíma og erfiði í að hreinsa undan þeim og vera alltaf að stjana við þær. Hættu þessu hristi og reyndu að finnan einhvern enda. 299
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.