Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 87

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 87
VLADÍMÍR MAJAKOVSKÍ það sama og verkamenn Pútílofverk- smiðjunnar, — en hann hugsar það af dæmafáum krafti. Majakovskí gerði allt sem hann gat fyrir hið unga sósíalistíska lýðveldi og menningu þess. Aróöursspjöld Rosta voru aðeins lítilfjörleg byrjun. 011 starfsár sín skrifar hann tugi og hundruð ljóða, sem gegna þessu sama markmiði. Hann formælir í mörgum mergjuðum orðsendingum hræsnis- fullum stjórnmálamönnum vesturs- ins. Hann fer hamförum gegn mútu- þægni, skriffinnsku og drykkjuskap. Nýríka braskara Nep-tímanna og kirkjunnar misdyggðuga þjóna mal- ar liann mélinu smærra. Hann treður í jörð niður þann Ivanof, sem alltaf er að vinna sig í gott sovézkt álit. Hann útskýrir fyrir almenningi ýms- ar ráðstafanir flokks og stjórnar, til dæmis hvað bændur græði á nýju skattafyrirkomulagi (sjá kvæðið Til- skipun um skatta aj korni, kartöjlum og sólblómsjrœjum). Hann lofsyngur hreinlæti í nýjum verkamannabústöð- um og fyrstu vatnsaflsrafstöðvarnar. Hann útlistar bændum gagnsemi flug- véla í baráttu við meindýr. Hann hef- ur í frannni áróður fyrir sölu ríkis- skuldabréfa. Hann gerir það jafnvel sér til gamans að semja auglýsingar í Ijóðum, auglýsir kennsluhækur, gúmmískó, túttur og sælgæti. Enginn gæti með jafngóðri samvizku og Majakovskí tekið undir orð Dags Sig- urðarsonar: skáldskapur ætti að stuðla að góðæri. Og það sem mestu máli skiptir: Majakovskí tókst að finna hið rétta orð, hið óvenjulega, sterka orð til að segja hug sinn um vandamál tímans. Við skulum rétt minnast á einn þátt í starfi skáldsins: útbreiðslustarf- semi. Majakovskí harðist eins og ljón fyrir því að orð hans, sannleikur hans næði sem fyrst eyrum þjóðarinnar og alls heimsins. Hann hélt upplestrar- kvöld um öll Sovétríkin, hélt stuttar þrumuræður um hina nýju list, las ljóð, svaraði spurningum. Hann las ágætlega, rödd hans var mikil og auð- ug og orðheppni hans frábær i orða- skaki við andstæðinga sem voru margir. Þessi kvöld eru jafnan vafin helgiljóma í endurminningum sam- tíðarmanna. Majakovskí ferðaðisl einnig mikið erlendis. Hann segir frá og les upp kvæði fyrir róttæka rússa og gyðinga i Bandaríkjunum, einnig tékka og pólverja. Hann spjallar við myndlistarmenn í Mexíkó og Frakk- landi: Diego Rivera, Picasso, Léger, Delaunay, einnig rithöfundinn Coc- teau. Allt þetta fólk átti um marga hluti svipaðar skoðanir og Majakov- skí, umræðugrundvöllur var ágætur. í ferðapistlum frá Parísarferðinni segir skáldið það aðeins vera lítils- háttar tímaspursmál hvenær Gontsja- rova og Larionof snúi heim til Rúss- lands. Majakovskí orti mikið um þessi ferðalög og það er vert að geta þess, 325
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.