Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 88

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 88
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR sem hann veitir athygli fyrst og fremst. Hann er, eins og gömlum fútúrista ber, stórhrifinn af tækni nú- tímans og skrifar lofsöngva um stál- sinfóníur mannanna Brooklynbrúna og Eiffelturninn. SkáldiS ávarpar turninn þessum orðum: Turn viljið þér stjórna uppreisn? Tum við kjósum yður leiðtoga Ekki sæmir yður sannri ímynd vélasnilldar að bráðna hér fyrir versum Apollinaires. Því Majakovskí vill fyrir alla muni fá alla tækni heimsins heim til Sovét- ríkjanna, þar muni hún skipa vegleg- an sess: Komið til okkar ég skal útvega yður vegabréf hundrað sinnum á dag munum við sólfægja stál yðar og kopar En oftar er það, að honum verður hugsað til hinna fátæku og kúguðu í þeitn löndum sem hann lieimsækir: til hinna snauðu indjána (Mexico), til langþjáðra blökkumanna Vestur- Indía (Black and White). Og venju- lega kemur að því, að skáldið efnir til byltingar á staðnum til að rétta hlut þessa fólks. Notre Dame finnst Majakovskí til ýmsra hluta nýt bygg- ing, og getur þess því, að aðgát skuli höfð á þegar bomhatdéruð verði lög- reglustöðin beint á móti. Versalahöll- um breytir hann auðvitað í orlofs- heimili í snatri. Þess má geta, að í Versölum varð skáldið hrifnast af sprungunni á borði Maríu Antoin- ettu, hún er nefnilega eftir byssusting einhvers af þeim soldátum byltingar- innar sem komu að leiða drottning- una undir öxina fyrir tæpri hálfri annarri öld. Þannig þeytist þessi mikli starfs- maður um heiminn allur á kafi í ljóð. um, leikritum og blaðagreinum. Þannig lifði Majakovskí öll þau ár, sem hann átti ólifuð. Tíminn er svo naumur þeim mönnum, sem hafa höndlað þann sannleika, sem mun frelsa heiminn. Það er því ekki svo undarlegt, að okkur virðist sem þessi baráttumaður hafi ekki átt sér neitt einkalíf. Það er leitun á skáldi sem hefur ort jafn fá ástarkvæði og Majakovskí. Kvæði hans eru mjög persónuleg, en í þeim er helzt ekki minnzt á það, sem kemur aðeins einum, tveim eða þrem við. Þó var einkalíf hans rikt af stórviðburð- um. Hann elskaði konu bezta vinar síns, Osips Brík, hún hét Lilja. Sam- band þeirra þriggja var einkennilegt, því þau lifðu öll saman „andlega og oftast territoríalt“, einsog Lilja Brík segir í endurminningum sínum. Árið 1915 þegar ást skáldsins og Lilju varð uppvís, ákváðu þau öll þrjú að skilja ekki það sem eftir væri ævinn- ar. Um sögu þessarar ástar er margt á 326
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.