Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 7

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 7
ÞJÓÐFRELSISBARÁTTA OG SÓSÍALISMI til Ameríku, en þær varast að geta þess að sjálft efnahagsskipulag vest- rænnar siðmenningar á 19. öld fól í sér æ meir sem lengra leið löggild- ingu á þrælkun mikils hluta mann- kynsins. Enginn getur skilið þá sögu sem nú er að gerast í heiminum ef ímyndun- arafl hans er ekki fært um að bregða upp mynd af þeirri þrælkun sem ný- lenduveldin hófu í lok miðalda, og fjármagn evrópskrar borgarastéttar gerði að altæku og rígföstu kerfi á seinni hluta 19. aldar. Þá var örbirgð- in sem kapítalisminn hafði nærzt á flutt út að nokkru leyti til nýlendn- anna. Hið stéttarlega arðrán heima- fyrir var að nokkru leyti leyst af hólmi með arðráni þjóðar á þjóð: ný- lenduþjóðimar í heild urðu að alls- herjaröreigastétt, sem hægt var að keyra áfram án þess að mannúðin tefði fyrir; og ágóðann af þessu skipulagi mátti nota til að múta æ stærri hluta heimaþjóðanna, efla „miðstéttirnar“, sem voru hin örugg- asta vörn gegn byltingu. „Frelsið" varð almennara, jafnvel kosningar- réttur fór smámsaman, hægt og hægt, að verða almennur, að sama skapi og æ stærri hluta almennings var talin trú um að hann ætti sameiginlega hagsmuni með stórauðmagninu, sem fólust í arðráni og kúgun nýlendu- þjóðanna. Stéttabaráttuna tókst sums- staðar að slæva með því að gera álit- legan hluta verkalýðsstéttarinnar að sníkjudýrum hinnar útfluttu örbirgð- ar. En heimsvaldastefnan hafði fleiri aðferðir til að hneppa heiminn í þræl- dómsfjötra en nýlenduskipulagið sjálft í þröngum skilningi. Onnur að- alaðferð hennar fólst í því að gera formlega sjálfstæð ríki að efnahags- legum nýlendum. Um leið og heims- veldin leggja undir sig hvern skika af Afríku á seinni hluta 19. aldar verð- ur Kína að efnahagslegri hjálendu þeirra, Suður-Ameríka verður smám- saman aðhjálendu Bandaríkjanna, og jafnvel Rússaveldi var ekki langt frá því að fylla þennan flokk hálfný- lendna fram að byltingunni. Þessa aðra aðferð heimsvaldastefnunnar, hina dulbúnu nýlendukúgun, er sér- lega mikilvægt að hafa í huga nú á tímum. Hún hefur verið framin undir kjörorðum frelsis og frjálsra við- skipta; Bandaríkin hafa til dæmis aldrei litið á sig sem nýlenduveldi enda þótt sú aðstaða sem þeir nutu í rómönsku Ameríku væri ekki ýkja frábrugðin aðstöðu Breta eða Frakka í sínum nýlendum. Sá gróði sem streymt hefur frá hin- um þrælkuðu þjóðum til þrælahald- aranna þau 70 til 80 ár sem heims- valdaskipulagið var í algleymingi verður seint með tölum talinn. Og um hann verður sjálfsagt alltaf mjög erf- itt að fá nokkurt heildaryfirlit. Helzta ráðið til að gera sér einhverja hug- mynd um hann er að draga ályktanir 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.