Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Blaðsíða 34

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Blaðsíða 34
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR er það samt í bezta samræmi við þann hugsunarhátt og þá lífsskoðun sem ríkir í Brekkukoti. Björn afi er einnig fulltrúi þeirrar siðferðishugsjónar sem virðist ein- kenna taóismann samkvæmt skilningi Halldórs. Ef til vill er þetta siðferði framar öllu falið í nokkurs konar hlutleysi: ekki dæma menn, ekki vísa til yfirnáttúrlegra hluta og guðfræði- kenninga. Að minnsta kosti birtist taóisminn þannig í sögunni Temúdjín snýr lieim. Talsmenn kristindómsins og múhammeðstrúarinnar, biskupinn og ýmaninn, hóta Temúdjín eldslog- um helvítis og sverði spámannsins vegna afbrota hans. En meistarinn Síng-Síng-Hó segir aðeins ofur stilli- lega frá eiginleikum Hins Eina. Ágætt dæmi um afstöðu Bjarnar í Brekku- koti er frásögnin af viðskiptum hans og karlsins, sem var búinn að stela frá honum poka af mó: „Afi minn sagði hreinlega við kallinn í Steinbænum: guð getur ekki fyrirgefið þér, en mér Birni í Brekkukoti stendur á andskot- ans sama. Þannig er mér ekki grun- laust um að afi minn hafi átt sérstaka gjaldskrá yfir flesta þá hluti sem fyr- ir kunna að koma í lífi fiskimanns.“ Siðferðið í Brekkukoti hvílir alger- lega á mannlegum en ekki guðdóm- legum grundvelli. Frá sjónarmiði sjálfs sín vitnar Álfgrímur: „sérhver illur verknaður sem maður vinnur er einkum og sérílagi framinn gagnvart honum afa mínum“. Það getur líka vel verið, að breytni okkar flestra sé byggð frekar á slíkum persónulegum forsendum en á ákveðnum siðferði- legum hugmyndum. Þrátt fyrir það að Björn afi les stundum upphátt úr postillunni að hefðbundnum sið, þá hefur Álfgrími ekki tekizt „að hafa uppá neinum er þess minnist að hafa heyrt Björn í Brekkukoti vitna í kenníngar um guð- fræði, siðfræði ellegar heimspeki eft- ir postillunni“. Mannlegt eðli hans hefði ekki orðið öðruvísi „í nokkru því sem skiftir máli þó hann hefði lif- að hér í landi í heiðni; ellegar átt heima einhversstaðar þar á jörðinni sem ekki er lesin postilla, heldur trú- að á uxann Apís, guðinn Ra ellegar fuglinn Kólibrí.“ Á svipaðan hátt lýs- ir skáldið öðrum alþýðumanni í ann- arri bók, Fal bónda föður Uglu í Atómstöðinni. Dóttirin spyr í gamni föður sinn, hvort hann vilji ekki breyta nýju kirkjunni í „hof handa þeim Þór, Óðni og Frey“: Faðir minn endurtók nöjn þeirra seinn í máli og hugsi, og svipurinn mildaðist ajtur einsog við endur- minníngu horjinna vina: Þór, Óðinn og Freyr. Hajðu sœl nejnt þá. Og samt eru það ekki þeir. Ég held þú vitir ekki á hvað þú trú- ir faðir minn, sagði ég. Ojú telpa mín, ég trúi á mitt guð, við trúum á okkar guð, svaraði þessi. ofstœkislausi trúmaður og brosti að 126
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.