Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 69

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 69
LIST OG KAPÍTALISMI ar“, sem Marx talaði um hefur færzt yfir á manninn og náð honum að fullu á vald sitt. Mannlægingin kemur líka í ljós í útþurrkun persónueinkennanna, sem ýmsir bókmenntagagnrýnendur telja að marki sérstaklega nútíma ljóða- gerð. Persóna skáldsins dregur sig út- úr skáldskapnum (atriði, sem Flau- bert gerði þegar að meginreglu), og ljóðið öðlast ópersónulegt og að því er virðist „hlutlægt“ eðli. Þessi hlut- lægni á þó ekkert skylt við þá hlut- lægni, sem kemur af því að félagsleg heild, hópur eða stétt eignast mál i ljóðinu, enda finnst skáldinu það ekki vera túlkandi eða tæki slíks lif- andi samfélags — heldur er það hilt, að hann skynjar þætti sjálfsins, sem brotizt hafa út fyrir mörk vitundar- innar, sem þriðju persónu, sem „það“ eins og Freud hefur orðað þetta; og þetta „það“, sem á sér rætur í undir- djúpunum, í gleymdri fortíð verður síðan undirstaðan í opinberun ljóðs- ins. Ortega y Gasset talaði um „út- legð mannsins úr listinni“ (La des- humanization del arte). Rimbaud gaf eftirfarandi yfirlýsingu: „Yfirburðir mínir eru í því fólgnir að ég er hjarta- laus.“ Og um upphaf Ijóðsins kemst hann svo að orði: „Því að „ég“ eða sjálfið á ekkert skylt við þetta. Þegar pjátrið vaknar við það að vera orðið að lúðri, þá er það ekki því að þakka. Ég er viðstaddur þegar hugsun mín springur út, ég sé hana og heyri, ég strýk um bogann og þá tekur hljóm- kviðan í undirdjúpunum að bæra á sér« Rangt væri að segja: ég hugsa. Það ætti að heita: ég er hugsað- ur.“ Utþurrkun persónueinkennanna el- ur á þeirri blekkingu að vekja megi jafnvel dauða hluti til máls með því að treysta á „það“ eða undirvitund- ina — og hefur Joyce gert þessháttar tilraun í hinu myrka og ruglingslega verki sínu „Finnegans Wake“, en þar býr hann til mál, sem á að vera tunga höfuðskepnanna, vatns og vinda. En það eru raunar ekki hlutimir, sem tala, heldur hinn hlutgervði maður, sem er hættur að treysta vitund sinni, en reiðir sig á hugmyndatengsl und- irvitundarinnar. Gottfried Benn ber fyrir sig kenningar Levy-Brúhls um það að rökræn hugsun nái ekki til íor- rökræns hugferðis, sem sé „dýpra og lengra að komið“, og hann talar um „fyrnskuættað, magnþrungið og gjós andi sjálf“, sem sé uppistaða skáld- skaparins. „Herab, o, Ich, zum Beis- chlaf mit dem All; herab zu mir, Ihr Herrscher der Gebannten: Visionen, Ráusche, Völkerschaft der Fruhe'1.1 I stað hinnar þjóðfélagslegu heildar. sem hnignunarskáldið er hætt að trúa á, er fundin upp önnur heild, goð- söguleg, alheimsleg, ættuð aftan úr 1 Hverf þú niður, ó sjálf, til að sam- rekkja alverunni. Ó, komið til mín, þið drottnar útlaganna: sýnir, hviskrandi þyt- ur, þjóðir árdaganna. TÍMARIT MÁLS OG MENNINCAR 161 11
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.