Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 32
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR veginn? Á svipaðan hátt kemst Álf- grímur að orði í lok kaflans; en eins og kunnugt er, er sagan í heild sinni lögð honum í munn: „Allar ráðagerð- ir mínar um eilíft líf í Brekkukoti voru að aungu gerðar. Gleði mín af tilverunni var rofin. Kínamúrinn þar sem ég sjálfur var Sonur himins, hann var brotinn.” Ætli þessi Kínamúr sé ekki líka í einhverju sambandi við hina kínversku bók? í sögulok segir frá því, hvernig Álf- grímur gengur sem nýorðinn stúdent með afa sínum og ömmu í síðasta sinn „útum krosshliðið í Brekkukoti þar sem skilur tvo heima“. Það er enginn innantómur talsháttur á þessum stað. Brekkukot er vissulega heimur hand- an við heiminn, alveg eins og kotið undir jöklinum í Fegurð himinsins eða hús organistans í AtómstöSinni. Þar ríkir annar andi, annað andrúms- loft heldur en umhverfis. Hvernig er sá andi, hvemig eru þær manneskjur, sem Ijá honum rödd og hold? Það eru fyrst og fremst húsráðend- urnir, „afi“ Álfgríms og „amma“, sem setja svip sinn á Brekkukot. Amma er fjörgömul kona, samt er það hún sem heldur öllu saman: „aldrei dó í hlóðunum hjá henni þá tíð sem ég var sonur þeirra afa míns og ömmu“. Henni er líkt við „hjarta hússins“, og „mætti segja um hana svipað og heilbrigð hjörtu yfirleitt, að hver sem slíkt hjarta ber í brjósti veit ekki til hann hafi hjarta“. Hún er svo samgróin þessu húsi, að Álfgrím- ur er orðinn stálpaður, áður en það rennur upp fyrir honum, „að kannski hefði hún átt ævisögu einsog annað fólk“. Hún er af þeirri manngerð, er vinnur verk sín á heimilinu svo lítið ber á — „án erfiðismuna“ og sýndar- mennsku — og veitir öllu umhverfi sínu öryggi. Jafnvel húsbóndalaus hundur og flækingsköttur hænast að henni skilyrðislaust, af því að hún er öllum kvikindum góð, og þó án til- finningasemi í orði eða framkomu. Kýrin virðist í augum hennar vera hálfheilög skepna, alveg eins og kýrin á heimili Bjarts í Sumarhúsum í aug- um barna hans og húsfreyju. Yfirleitt getur þetta innilega samband manna og dýra minnt á heim æfintýra eða goðsagna. Jafnvel hversdagslegt sam- tal milli ömmu og annarrar konu get- ur í eyrum Álfgríms tekið á sig nokk- urs konar dulræn einkenni og hljóð- að „einsog sláttur í dufli fyrir utan Eingey; eða einsog fiðla norður á Lánganesi“. Afi og amma í Brekkukoti eiga það sammerkt við gömlu hjónin úr Rín- arlöndum í Alþýðubókinni eða í kot- inu undir jöklinum í Fegurð himins- ins, að eining þeirra og tryggð hvort við annað er fullkomin. Þegar Álf- grímur horfir á eftir þeim af þilfari skipsins í sögulok, sér hann hvar þau leiðast heim á leið: „Þau héldu hvorl í annars hönd einsog börn.“ Áhrif þeirra á Álfgrím eru einnig mjög 124
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.