Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR „Margt hann1 sá um miðja nótt, máske líka hálfur. Sá sem öllum ætlar ljótt oft er fantur sjálfur.“ — Annars eru íslendingar nú á dögum svo skapdaufir, að þeir eru hættir að yrkja almennilegt níð. II Þurrabúðarfólk Tvö ár voru liðin síðan jeg hafði stigið fæti í fjarðarkaupstað íslenskan og nú steig jeg af „Esju“ á Reyðarfirði, einn ágústmorguninn, eftir nokkurra daga lærdómsríka ferð meðfram ströndinni. Jeg dvaldi viku á fjörðunum og lærði margt af fólkinu, sem þá var í algleymi út af síldinni, en síldin er, eins og menn vita, ímynd guðs almáttugs á þessu landi og ræður örlögum manna, enda fagur fiskur, gerir menn ríka og fátæka, hyggna eða ringlaða, alt eftir dutlungum sínum. Það er þessi litfagra og dutlungafulla skepna utan úr haf- inu, sem stjórnar landinu, og skil jeg ekki enn hvað því veldur, að stórskáld vor skuli vera svo langt á eftir tímanum í hugsun, að hafa ekki uppgötvað þetta, heldur vera að yrkja einhverjar romsur um Christian R. og konu hans. Að vísu eru þau heiðurshjón alls góðs makleg, en það er engu að siður síldin, sem stjórnar landinu. Jeg skrifaði eystra smásögu eina, sem heitir Síldin. en það er ekki nema vesælt andvarp, og hefir svo fleirum farið, sem reynt hafa að yrkja um þá máttu er ráða örlögum mannanna. Nú bið jeg háttvirta kjósendur forláts á því, að jeg hefi ekki gáfur til að skrifa um framtíðarskilyrði kauptúnanna, í þeim tón, sem siðvenja er til, þeg- ar menn setjast á rökstóla og skrifa um ferðir sínar í blöðin. Jeg ætla ekki heldur að lýsa framkvæmdum athafnamanna á fjörðunum, að þessu sinni, nje framkvæmdaleysi athafnaleysingjanna. Aðeins leyfi jeg mjer að geta þess, að jeg varð hvergi snortinn af neinu, er vott bæri um sjerstakt ímyndunarafl manna á fjörðunum. En jeg trúi á ímyndunaraflið sem primum mobile og höf- uðskilyrði brautargengis á hverju sviði, en þar næst á heilbrigða skynsemi. Menn hafa ekki hálft not af lífinu nema þeir neyti ímyndunarafls síns, þ. e. a. s., láti sjer detta eitthvað í hug. Alment gera menn á fjörðunum líf sitt tífalt erfiðara fyrir þá sök, að þeir hirða ekki um að glæða þessa ögn sem hverjum 1 nfl. H. K. L. 134
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.