Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 74
TÍMARIT MÁLS OG M ENNINGAR way, hinn víðfrægi lærisveinn Gert- rude Stein, bregður fyrir sig þessari flóttatækni í sögunum fimmtán, sem birtust í „In our times“. í örstuttum innskotsköflum milli sagnanna er brugðið upp hrikalegum atburðum samtímans: styrjaldir, morð, pynd- ingar, blóð, skelfing, grimmd, allt þetta, sem nútímadulspekingum er svo umhugað um að skýra sem „til- gangsleysi sögunnar“ — og sjálfar frásagnirnar eru að því er virðist tíð- indasnauðir og innihaldslausir við- burðir utan og handan við allt, sem snertir heiminn, og þarna fyrir utan og handan á manni að skiljast að sé hin eiginlega tilvera. Það er greint frá því með skáldlegum frásagnar- fjálgleik, hvemig hinn einmana Nick reisir tjald sitt. „Hann var kominn undir þak. Ekkert gat framar sakað hann. Þetta var góður tjaldstaður. Og hann var hér á þessum góða stað ... Úti var niðamyrkur. í tjaldinu var bjartara.“ Að vissu leyti er þetta ekki annað en tilbrigði af setningunni: „Rósin er rósin er rósin er rósin ...“, það er lífspeki þess, sem flúinn er frá samfélaginu: reistu tjald þitt fjarri heiminum, annað svarar ekki kostn- aði. Heimurinn er myrkur. Skríddu í tjaldið. Þar er bjartara. Aðferð Hemingways er í samræmi við mjög algengt fyrirbæri í hinum síðborgaralega heimi: fólk flýr í hóp- um, sérstaklega æskufólk, undan vinnuleiðanum, undan tómleikatil- finningunni, undan leiðindakennd- inni, sem Baudelaire hafði þegar vik- ið að í Ijóðum sínum, undan skyldun- um við þjóðfélagið og frá hugmynda- kerfum þess; undan öllu þessu flýr það á drynjandi mótorhjólum í ys og hraða, sem gleypir hverja tilfinningu og hugsun, flýr burt frá umhverfi samtíðarinnar, burt frá sjálfu sér útí sunnudaginn ellegar sumarleyfið þar sem tilgang lífsins er að finna. Heilar kynslóðir hins kapítalíska heims flýja sjálfar sig líkt og ógæfan væri á hæl- um þeim, eins og skelfdar af aðsteðj- andi veðragný, þær flýja til að reisa á einhverjum ókunnum slóðum reik- ult tjald sitt, þar sem er bjartara en útí myrkrinu. Útþurrkun félagslegs og mannlegs inntaks í hinum firrtu listum og bók- menntum er þeim mun háskalegri sem samtímis kom fram á sjónarsviðið upptökutæknin, sem hófst með hljóm- plötunni og ljósmyndinni og leitt hef- ur af sér risavaxinn skemmtanaiðnað, sem sinnir þörfum mikils fjölda neyt- enda. Alkunna er að mikill hluti hinn- ar kapítalísku listframleiðslu fyrir fjöldamarkað einkennist af skræl- ingjahætti, andmennskum viðhorfum og hrottalegri æsi- og yfirþyrmingar- tækni; það veitti ekki af sérstakri bók ef taka ætti til meðferðar þessa fram- leiðslu og áhrif hennar. Tvennt vildi ég þó einkum benda á: í fyrsta lagi verða nokkuð margir hæfir listamenn og rithöfundar til að móta fyrirmynd- 166
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.