Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 100

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 100
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Ég vil mega segja, að meginvankantar smásagna Friðjóns Stefánssonar séu fólgnir í hæpnum rithætti af þessu tagi. Röng eða óviðkunnanleg meðferð sagna skýtur upp kolli („Síðan urffu þau gift ...“), auk þess sem upprifjunarstíll hans grundvallast mjög á þáliðinni tíð, síendurtekinni („... Að vísu hafði ég ekki fengið bréf ...“; „Ég hafffi verið að ganga frá dótinu ...“), sem er í senn hvimleitt og viðvaningslegt ein- kenni frásagnar til lengdar, hvortheldur er í ræðu eða riti, ef því er beitt í ótíma. Að þessu slepptu — og öðru sem ábóta- vant kann að vera reisn málsins — eru þetta mjög athyglisverðar myndir úr lífi alþýðu- fólks, ég sagði áðan baráttusögur, og það eru þær hvað snertir að liðin atvik, tilvilj- anir eða örlög, eru forsenda þess sem gerist þegar höf. leiðir saman persónurnar. Þetta er að jafnaði innri barátta, vettvangurinn andlegur, stundum heimspekilegt og sál- fræðilegt uppgjör manna við lífið og sjálfa sig. í sögum eins og „Samtíðaráhrif" og „Trúnaðarmál" hættir hann sér út á nokk- uð hálan ís, og tal manna verður fræðibók- arlegt, en þó er ekki hægt að segja að hon- um verði fótaskortur. Við allar þessar sögur er eitthvað ágætt og að loknum lestri minnisstætt, hverja og eina, eitthvað sem skiptir öllu máli til að lesandinn meti þær. Óheppilegu og jafnvel fábreyttu orðfæri tekst ekki að skyggja á það. Því að eitt er það sem höf. kann: hann hefur á valdi sínu að byggja upp smásögu á listrænan hátt, og á þetta einkum við um stytztu sögurnar. Ég nefni sem dæmi „Fjög- ur augu“ og „Samlíkingu við saltfisk", en hin síðarnefnda er að minni hyggju bezt skrifaða sagan í bókinni (t. d. nokkurnveg- inn laus við þáliðna-stílinn), raunsönn, hnitmiðuð, gersneydd væmni. Og það má með sanni telja sögum Friðjóns til gildis, yfirleitt, að þær eru ekki væmnar, honum hættir ekki til óþarfa málalenginga, en ber ágætt skyn á það sem segja þarf — eða sleppa. „I ljósaskiptum" er að líkindum nokkuð heppilega valið safn úr smásögum Friðjóns, ef ekki sem úrval, þá sem sýnishorn, þver- skurðarmynd af framleiðslu hans til þessa. Ég vona samt ég geri ekki að ástæðulausu of lítið úr þessari bók þótt ég segi það grun minn, að Friðjón Stefánsson eigi enn fyrir höndum að skrifa sínar beztu sögur. Elías Mar. 192
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.