Tímarit Máls og menningar - 01.07.1962, Qupperneq 23
NOKKRIR PUNKTAR UM SIÐVÆÐINGU
mannamálaráðherra og var hann einn
af fararstjórum í hnattförinni.
Það er vissara að trúa varlega frétt-
um siðvæðingarmanna um aðsókn og
vinsældir þeirra leiksýninga og kvik-
mynda sem þeir sýna í áróðursskyni.
Reykvíkingum er í fersku minni er
flokkur MRA-manna kom til Reykja-
víkur árið 1960 og sýndi kvikmynd-
ina „Frelsi“. Þar var sýnt hvernig sið-
væðingin útkljáði kynþáttadeilur í
Afríku. Kvikmyndin var frumsýnd í
Austurbæjarbíó, sem tekur rúmlega
900 manns í sæti. Send voru út um
1500 boðskort og munu um 1200 hafa
þegið boðið. Allmargir urðu frá að
hverfa, aðrir urðu að láta sér lynda
að standa. Siðvæddir Ijósmyndarar
voru til taks og tóku myndir af mann-
fjöldanum. Fréttirnar létu ekki á sér
standa í málgögnum MRA: Kvik-
myndin „Frelsi“ var frumsýnd í
stærsta samkomuhúsi Reykjavíkur
og var aðsókn svo gífurleg að ekki
varð við neitt ráðið. Fjöldi manns
tók þann kostinn að standa allan tím-
ann frekar en missa af myndinni.
Viðtökur áhorfenda voru frábærar og
voru flestir djúpt snortnir af boðskap
myndarinnar. — Hinsvegar láðist
blaðinu (MRA Informasjon) að geta
þess að siðvæðingarmenn tóku Nýja
Bíó á leigu að aflokinni frumsýningu,
sýndu þar kvikmyndina í rúma viku
fyrir auðum bekkjum unz þeir að
lokum gáfust upp.
Ole Björn Kraft, fyrrum utanríkis-
ráðherra, formaður danska íhalds-
flokksins og stjórnarformaður NATO
á árunum 1952—1953, var einn
þeirra sem tóku þátt í hinni miklu á-
róðursherferð MRA umhverfis hnött-
inn. Hann hefur ritað bók um ferð-
ina, En Verdensrejse med Verdens-
perspektiv og segir þar að hnattförin
hafi haft svipað gildi fyrir veraldar-
söguna og landkönnunarferðir mið-
alda. Bókin er að mestu leyti upp-
tugga á slagorðum þeirra Buchmans
og Peter Howards ásamt skrúðyrtum
lýsingum á keisarahöllum, forsetabú-
stöðum og indælum móttökum. En
sumstaðar í bókinni kemur berlega í
ljós hvaða nauður hefur rekið þenn-
an danska íhaldsjálk og natóherra til
þess að þeytast um allar jarðir syngj-
andi sálma og lofandi Guð. Trúar-
þörfin og „frelsunin“ er af heldur
jarðneskum toga spunnin. í kafla
þeim í bókinni sem helgaður er Ind-
landi, en það var eitt þeirra landa
sem flokkurinn heimsótti, verður Ole
Bjöm Kraft tíðrætt um hlutleysi Ind-
lands og þær „alvarlegu“ afleiðingar
sem það kynni að hafa.
„Sovétríkin hafa reynt að notfæra
sér þá aðstöðu út í æsar, og sýna
yfirþyrmandi vináttu. Meðan við
dvöldum í Delhi, var sýnd í mörgum
kvikmyndahúsum mjög áhrifamikil
kvikmynd um nýafstaðna heimsókn
Nehrus til Rússlands. Hann þurfti
ekki að kvarta undan móttökunum.
Kvikmyndin var stórkostleg auglýs-
213