Tímarit Máls og menningar - 01.07.1962, Blaðsíða 60
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ir skilninginn, svo að margt það verður augljóst sem áður var í móðu eða
alveg dulið.
Auðvelt er að gera línurit til skýringar þessu viðfangsefni. Það verður þá
í upphafi eins og dæmið hljóðar, og samrýmist nákvæmlega fyrstu jöfnunum
sem ritaðar voru. Þetta línurit sýnir fallandi beitarmörk, grasfall. Það bendir
á að þar sem beitin er eydd geti ekkert grasfall orðið, svo að daglegt grasfall
hljóti að minnka frá degi til dags, og að beitarmörkin verði aðgreindar bog-
línur. Þá verður ljóst að grasfallið seinasta beitardaginn er vel helmingur
þess sem það var þann næst seinasta, vel þriðjungur þess sem féll á þriðja
degi fyrir beitarþrot, og þannig má áfram rekja. Vel helmingur, vegna þess
að kýrnar bíta því stærri reit daglega sem nær dregur beitarþrotum, og því
minnkar grasfallið ekki alveg að sama skapi og dögum til beitarloka fækkar.
Sé nú sá mismunur látinn koma á móti því sem hlýtur að skorta á fullkomna
nýtingu beitarinnar, hvað ekki virðist fjarri sanni, má setja upp auðveldar
jöfnur, að sönnu reistar á þessari handahófsmiðlun tveggja ómældra þátta
viðfangsefnisins, og þó líklegar til að gefa betri lausnir en aðrar traustari jöfn-
ur, sem sleppa þeim ómældu þáttum.
Gefum duldum tölum nöfn:
x = fjöldi kúnna sem beita má á blettinn óskiptan í 7 daga.
y = fóðurmagn á hálfum blettinum við upphaf beitar.
v = hlutfallið milli fallins grass og bitins, á bletti sem ein kýr nauðbítur á
einum degi. (Þetta hlutfall breytist lítið eitt frá degi til dags. Það er
veila í jöfnunum, og því ætti að rita þær með nálgunarmerki í stað jafn-
aðarmerkis).
Jöfnur:
10(10 — l)v 9 (9 — 1) v x 7(7—l)v
y = 7 (10 +-----------) = 8 (9 +---------) = — (7 H----------).
2 2 2 2
(7 + 21v) x
y = 70 + 315v = 72 + 288v =--------------.
2
280-2-9
v = 2/27; y — 280/3; x =--------; * = 21,8.
3-77
Svarið er enn sem fyrr: 22 kýr, og þó ein þeirra kvíga.
í kennslustund þyrfti margt að athuga, varðandi þetta dæmi, sem hér er
sleppt, svo sem deilingu hagagöngu og grasfalls á stundir hvers sólarhrings,
250