Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Síða 42
Jlans Magnus Enzensberger
íu* kennslubók í'yrlr framlialdsskóla
leslu ekki kvæði, drengur, ferðaskrár
eru nákvæmari. flettu sjókortum sundur
meðan tími er. vertu á verði, syngdu ekki.
sá dagur kemur, að þeir klína á dyrnar
nýjum svörtulistum og brennimerkja þá sem svara
neitandi, lærðu að dyljast, lærðu meira en ég:
að breyta um aðsetur, vegabréf, andlit.
hafðu vit á minniháttar svikabrögðum,
kámugri undankomu frá degi til dags. páfabréf
eru gagnleg til uppkveikju, flokksforingjaávörp
í umbúðir um smj ör og salt
handa hinum varnarlausu. þolinmæði og reiði
eru nauðsynleg til að blása inn í lungu valdsins
binu banvæna smágera dufti, fínmöluðu
af þeim, sem hafa mikið lært
og eru nákvæmir í háttum sínum, af þér.
óður til clnskls
hjarta þitt fullt reyks er vitni,
einstæði konungur, í vindinum
auga þitt fullt sorgar.
þú ert förunautur töfranna,
upplýstur af mörgum eyðimörkum,
krýndur af hinum ófyrirlátsömu,
32