Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Síða 46
Tímarit Máls og menningar
en það þegir
í sinni fornu ísgryfju
hjarta grænlands
og stendur mig að því að lofa upp í ermina á mér.
því að um okkur, hönd mín,
vil ég ræða, um hið fallvalta,
þar sem lofið er strjált
og smátt í sniðum, og tíminn naumur.
þar gista krabbar
í gryfjum; og þér, hönd mín,
hlýt ég að sökkva
í þessar vilpur óhljóðanna og dauðans.
Ualdur Ragnarsson þýddi.
Illans Magnus Enzensbcrger er fæddur árið 1929 í Bayern og ólsl upp í Niirnberg. llann
dvaldist all-lengi í Noregi, en á nú lieima í Berlín. Hann er einna eftirtektarverðastur
hinna yngri skálda í Þýzkalandi. llann hefur gefið út þrjár Ijúðahækur: Verteidigung
der Wölje, 1956; Landessprache, 1960; Blindenschrijt, 1964. Þá hefur hann samið margar
merkilegar ritgerðir, einkum um pólitík og bókmenntir, og beitir þar gjarnan félagsfræði-
legum aðferðum til að rannsaka menningar- og ómenningareinkenni nútímans. Ifafa kom-
ið út eftir hann tvær bækur með' ritgerðum: Einzelhciten, 1962 og Polilik und Verbrechen,
1964. Árið 1965 hóf liann útgáfu tímaritsins Kursbuch, þar sein fjallað er á róttækan
hált um hin ólíkustu efni, allt frá hókmenntum til stærðfræði.]
36