Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 63
fuglar eru friðaðar að nokkru eða
öllu leyti. Lög um friðun hreindýra
og eftirlit með þeim voru sett 1940,
þar sem hreindýr voru alfriðuð, nema
hvað heimild var veitt til að láta
veiða hreintarfa, ef sérstök ástæða
virtist til. 1954 var þeimlögumbreytt,
þar sem hreindýrum hafði fjölgað,
og þá heimiluð takmörkuð veiði ár-
lega undir eftirliti, ef eftirlitsmaður
teldi stofninum ekki stafa hætta af
veiðunum. Veiði hefur verið heimil-
uð á tilteknum fj ölda dýra hvert sum-
ar síðan, nema tvö síðustu sumur
hefur engin veiði verið leyfð. Lög
voru sett um hvalveiðar 1928 en end-
urskoðuð 1949 og reglugerð sett. Þar
er bannað að veiða hvalkálfa og kýr
með kálfa, vissar tegundir hvala eru
alfriðaðar og aðrar tegundir er bann-
að að veiða séu þær undir tiltekinni
lágmarksstærð. Þá eru veiðarnar tak-
markaðar við ákveðin svæði, ákveð-
inn tíma árs og ákveðið magn hvala á
hverju ári. Með lögum nr. 23 frá
1914 voru hérar friðaðir hér á landi,
en þá stóð til að fjölga veiðidýrum á
íslandi með því að flytja inn allt að
50 héra frá Noregi eða Færeyjum
og sleppa þeim hér. Af þessum inn-
flutningi varð aldrei, en lögin eru
samt enn í gildi.
í lögum um lax- og silungsveiði,
sem eru frá 1957 og fjalla einkum
um veiðirétt, veiðitæki og aðferðir,
veiðifélög og fiskræktarfélög, eru ým-
is ákvæði um friðun lax og silungs.
Náttúruvernd á íslandi
Lax má t. d. ekki veiða í sjó og ekki
í fersku vatni nema tiltekinn tíma ár
hvert, silungur er einnig friðaður
fyrir allri veiði ákveðinn tíma á ári.
Ströng ákvæði eru einnig um veiði-
tæki og aðferðir.
Þá eru til ýmis fleiri lög, sem
stemma stigu við eða takmarka notk-
un ákveðinna veiðitækja við aðrar
fiskveiðar í sjó, og eru slíkar tak-
markanir oft bundnar við ákveðin
svæði og tilgangurinn auðvitað sá að
koma í veg fyrir ofveiði og þó eink-
um að vernda ungviði og hrygning-
arstöðvar. í þeim efnum er rík ástæða
til að vera vel á verði og slaka hvergi
á skynsamlegum kröfum, því þar er
mikið í húfi að fiskstofnum verði
ekki spillt og verður vart of varlega
farið.
1927 voru sett lög um varnir gegn
sýkingu nytjajurta, þ. e. lög til að
koma í veg fyrir að hættulegir plöntu-
sjúkdómar berist til landsins og sýki
ræktaðar plöntur og villtar. 1948
voru sett lög um innflutning dýra,
fyrst og fremst til að koma í veg fyrir
að búfjársjúkdómar bærust til lands-
ins, en ef til vill hefur þó saga minks-
ins hér á landi ráðið þar einhverju
um. Þá sögu þarf ekki að rekja hér,
hún er of kunn til þess, en minkaeldi
var bannað hér með lögum árið 1951
og nýlega felldi Alþingi frumvarp um
að leyfa það að nýju.
í lögum um eyðingu refa og minka
frá 1957 var lögboðin eitrun á hverju
53