Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 18
Tímarit Máls og menningar
þokkaður að þeir réðu honum og ætt-
mennum hans bana og fengu sér nýj-
ar stoðir. Það er að beiðni slíkrar
stjórnar og annarra álíka að Banda-
ríkin telja sig vera að verja sjálfstæði
landsins, þ. e. a. s. stjórna sem þeir
hafa sjálfir sniðið sér eftir þörfum
eða kollvarpað í fyllingu tímans, eða
eins og Fulbright öldungadeildar-
þingmaður sagði svo hreinskilnislega
þegar hann var reiðastur Ky hers-
höfðingja á dögunum: Þetta eru
okkar stjórnir, við höfum haft marg-
ar ríkisstjórnir í Suður-Víetnam, og
við getum sett þær af þegar við vilj-
um.
Varðandi þá ástæðu að þeir séu að
verja landið gegn árás frá Norður-
Víetnam er því fyrst til að svara að
þetta er ein og sama þjóðin, samein-
uð í hatri sínu á hinum erlenda árás-
arher og málaliði hans í Saigon. Og
í öðru lagi hafa Bandaríkin ekki get-
að fært neinar sönnur á að liðssveitir
að norðan hafi barizt með Víet Cong
og sízt af öllu fram til ársins 1965
eða fram til þess tíma að Bandaríkin
hófu sprengjuárásir á Norður-Víet-
nam undir því yfirskyni að þeir væru
að girða fyrir innrás þaðan. Banda-
ríkjastjórn gaf þá út hvíta bók um
Víetnam, í febrúarlok 1965, stríðinu
til réttlætingar, sem í raun réttri stóð
og féll með því hvort í Suður-Víet-
nam var „lögleg ríkisstjórn“. Þetta
plagg tættu ritstjórar bandaríska
tímaritsins Monlhly Review sundur
lið fyrir lið og töldu það safn af stór-
lygum.
Nei, Bandaríkin bera allt annað
fyrir brjósti í Suður-Víetnam en sjálf-
stæði og frelsi þjóðarinnar, það sýnir
bezt tólf ára saga þeirra þar i landi
drifin blóði og tárum íbúanna, og
hún gefur um leið svarið við því
hvernig þau hafa hrakizt fyrir storm-
um atburðanna út í hernaðaraðgerðir
sem miða, ekki að frelsi heldur út-
þurrkun jjjóðarinnar. En einhver öfl
styðjast þó Bandaríkin við í Suður-
Víetnam, heyrast menn segja. Jú,
mikil ósköp, að minnsta kosti framan
af: hin sömu öfl og hvarvetna ann-
arsstaðar, og við þekkjum svo mæta
vel, þau öfl sem í hverju landi vilja
sitja yfir hlut alþýðu. Og í Suður-
Víelnam völdu Bandaríkjamenn sér
þau öfl sjálfir sem þeir sömdu við,
og þau komu þeim auðvitað jjar sem
hér hlaupandi upp í fangið. Og vörp-
um aðeins snöggu ljósi á jæssa tólf
ára sögu.
1 frelsisstríði sínu við Frakka háðu
íbúar Víetnam, einkum bændastéttin
jafnframt baráttu til að losna úr
ánauð hins forna lénsskipulags og
fyrir þjóðfélagslegum réttindum og
umbótum. Stríðið gegn nýlenduyfir-
ráðum Frakka var því um leið þjóð-
félagsleg bylting undan miðalda-
ánauð, og vegna forystu í þessari al-
hliða þjóðfrelsisbaráttu hlaut Hó Chi
Minh sínar miklu vinsældir. Léns-
herrarnir, ýmist franskir eða inn-
8