Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 70
Tímarit Máls og menningar
skipar menntamálaráðherra án til-
nefningar. Aðrir kaflar laganna fjalla
síðan um úrlausn og meðferð nátt-
úruverndarmála, almenn ákvæði o. fl.
Náttúruverndarnefndir geta átt
frumkvæði að friðlýsingum og leyst
úr ýmsum málum, sem undir Jsær eru
borin, en ýmsar úrlausnir náttúru-
verndar öðlast ekki fullnaðargildi
nema náttúruverndarráð staðfesti
Jaær. Náttúruverndarráð skal vera
menntamálaráðuneyti til aðstoðar um
öll efni er varða náttúruvernd. Það
skal kynna sér eftir föngum náttúru-
minjar, sem ástæða er til að friðlýsa,
og semja síðan skrá yfir þær í sam-
vinnu við náttúruverndarnefndir og
fleiri aðila, sem áhuga kunna að hafa
á þeim málum, Náttúruverndarráð
getur sjálft átt frumkvæði að því að
stofna til náttúruverndarmáls, en
fjallar auk þess um úrlausnir nátt-
úruverndarnefnda og önnur mál, sem
því kunna að berast. Ákvarðanir
náttúruverndarráðs um friðlýsingu
landsvæða sem friðlanda eða þjóð-
vanga koma ekki til framkvæmda fyrr
en menntamálaráðuneytið hefur sam-
þykkt hana. Fullnaðarúrlausnir um
náttúruverndaraðgerðir eru svo birt-
ar í Lögbirtingarblaði og skulu tald-
ar mönnum kunnar frá birtingar-
degi.
Nú verður rakið lauslega hvernig
framkvæmd þessara laga hefur verið
og getið um starfsemi náttúruvernd-
arnefnda og náttúruverndarráðs og
þær friðlýsingar, sem hafa verið
gerðar.
Náttúruverndarnefndir voru skip-
aðar samkvæmt lögunum í öllum sýsl-
um og flestum kaupstöðum landsins
en hafa, skemmst frá að segja, starf-
að mj ög lítið, svo ekki sé meira sagt.
Mér er til efs að sumar þeirra hafi
haldið fundi árlega, hvað þá oftar,
enda eru þau ekki mörg málin, sem
náttúruverndarráði hafa borizt frá
náttúruverndarnefndum. Það er ekki
gott að segja, hvað veldur þessari
tregðu, en sennilegast þykir mér, að
Jæss hafi ekki verið gætt sem skyldi
að skipa í nefndirnar menn með
skilning og áhuga á náttúruverndar-
málum, og svo er heldur ekki víst að
allir formenn náttúruverndarnefnda,
þ. e. sýslumenn og bæjarfógetar, séu
jafn áhugasamir um þessi mál.
Náttúruverndarráð hefur starfað
nokkuð reglulega og haldið fjölda
funda síðan það var sett á laggirnar.
Það hefur fengið til umsagnar ýmis
mál frá Alþingi og ríkisstjórn, því
hafa borizt ýmis erindi önnur víðs
vegar af landinu, þó fæst af þeim hafi
verið frá náttúruverndarnefndum,
það hefur verið reynt að afgreiða
þau eftir mætti. Ráðið hefur haft til
meðferðar ýmis friðunarmál og hafa
nokkur þeirra hlotið fullnaðarúr-
lausn og öðlast gildi. Dropsteins-
myndanir í hellum landsins voru frið-
lýstar 1958. Eldey út af Reykjanesi,
sem hafði verið friðuð samkvæmt sér-
60