Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 77
Bergsleinn Jónsson
Fyrstu íslenzku tímaritin II
Islenzkir höjundar gömlu félagsrilanna
Arngrímur Jónsson (ca. 1725—?) lögsagn-
ari og lögréttumaður.
í 12. bindi: „Um Fisk-hclgi“, bls. 216—
226.
Foreldrar lians voru hjónin Jón Jónsson
bóndi á Brekkulæk (eða Bretalæk) í Mið-
firði og Signý Jónsdóttir. Um eitt skeið
bjó hann í Kirkjuhvammi en síðast á Auð-
unarstöðum í Víðidal. Var lögsagnari
Bjarna Halldórssonar sýslumanns á Þing-
eyrum 1765—73 og gegndi embættinu frá
láti Bjarna þangað til næsti sýslumaður
tók við. „Talinn skýr inaður."1 Kvæntur
Guðrúnu Pálsdóttur frá Broddanesi. (1)
(2) (3)
Bencdikl Jónsson Gröndal (13. nóv. 1760
eða 1762—30. júlí 1825), yfirdómari.
í 8. bindi: „Avísan um hina beztu ad-
ferd at setia Bólu á Islandi, úr Dönsku út-
lögd ... (1—25 bls.)“.
„Um Pottösku-brennu af Siáfarþángi, úr
Dönsku útlagt ... (231—239)“. — Höfund-
ur var Miiller laborant.
í 9. bindi: „Avísun til at bleikia Lérept
á Islandi, snúit af dönsku ... (bls. 144—
159).“
„Tilraun uin Gáfna-Próf; snúit af þýzku
... (bls. 231—262).“ — Ilöfundur Chr.
Garve prófessor í Leipzig.
I 10. bindi: „Musteri mannordsins af
Alexander Pope, snúit... (285—312).“
í 11. bindi: „Um Húsblas (bls. 186—
192), skrifat af Hra. Justitsrádi og Labór-
ant H. J. Miiller, og snúit ...“
„Musteri mannordsins" etc. (bls. 279—
288).
I 15. bindi: „Musteri Mannordsins af
Alexander Pope ... snúit á Islcndsku ...
(275—282).“
Fæddur í Vogum við Mývatn, sonur hjón-
anna sr. Jóns Þórarinssonar og Helgu Tóm-
asdóttur. Brautskráður úr Ilólaskóla 1781,
síðan skrifari lijá Olafi Stefánssyni amt-
manni. Við laganám í háskólanum í Kaup-
mannahöfn 1786—91, er hann lauk prófi
snemma sumars. Varð þá varalögmaður en
reglulegur lögmaður sunnan og austan í
janúarmánuði 1800, liinn síðasti i því
embætti, því að hinn 11. júlímánaðar sama
ár var landsyfirrétturinn stofnaður í stað
dómþingsins við Oxará (lögmannsdóms og
yfirdóms). Varð hann þá fyrri yfirdómari.
— Bjó á skák af Nesi við Seltjörn 1798—
1811 en upp frá því í Reykjavík, ávallt við
mjög þröngan efnahag. Lamaðist snennna
á heilsu og fékk lausn frá embætti stimarið
1817. Kvæntur Þuríði Ólafsdóttur frá
Frostastöðum í Skagafirði, systur Ólafs
prófessors á Kóngsbergi. Bcnedikt “... var
hinn mesti gáfumaður og helzta skáld sinn-
ar tíðar."1 (1) (4) (5) (6)
Bjarni Einarsson (1746—3. maí 1799)
sýslumaður.
í 3. bindi: „Um Terraneufs- og Klipp-
fisks-verkun ... (1—27 bl.)“.
67