Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 37
Ótti og eymd þriðja ríkisins
KONAN: Karl, við megum ekki vera að því að tala um það núna. Við verðum
að leggja allt nákvæmlega niður fyrir okkur, og það strax. Við megum
engan tíma missa.
maðurinn: Ég trúi því ekki á Klás Hinrik.
KONAN: Byrjum þá á þessu um Brúna húsið og óþverrann.
MAÐURINN: Ég hef alls ekki minnzt á neinn ójrverra.
KONAN: Þú sagðir það væri eintómur ójrverri í dagblaðinu og þú ætlaðir
að segja því upp.
MAÐURINN: Já, í dagblaðinu! En ekki í Brúna húsinu!
KONAN: Hefurðu ekki getað sagt að J)ú fordæmdir þennan óþverra í skrúð-
húsunum? Og að þú teljir meira en sennilegt að það hafi verið þeir sömu
og eru nú fyrir rétti sem hafi á sínum tíma komið á kreik hryllingssögun-
um um Brúna húsið og að ekki sé nú allt hreint þar. Og að þeir hefðu
betur litið í eigin barm þá strax. Og svo sagðirðu lika við þann litla:
láttu útvarpið vera og lestu heldur blaðið, af því að jsað er skoðun J)ín
að æska þriðja rikisins eigi að fylgjast opnum augum með því sem er
að gerast í kringum hana.
maðurinn: Uss, það hjálpar ekki neitt.
KONAN: Karl, nú máttu ekki láta hugfallast! Þú verður að vera Jirekmikill
eins og Foringinn er alltaf .. .
MAÐURINN: Hvernig á ég að ganga fram fyrir réttinn, og í vitnastúkunni
stendur mitt eigið hold og blóð og vitnar á móti mér.
KONAN: Þannig þarftu nú ekki að líta á það.
MAÐURINN: Það var mikið kæruleysi að vera að umgangast Klims-hjónin.
konan: En Jjað hefur ekkert komið fyrir Klims.
MAÐURINN: Nei, en rannsóknin er J)egar komin vel á veg.
KONAN: Ef allir sem einhverntíma hafa fengið rannsókn yfir sig mundu
örvænta.
maðurinn: Heldurðu að húsverðinum sé í nöp við okkur?
KONAN: Ef leitað verður álits hans meinarðu? Hann fékk vindlapakka í
afmælisgjöf og nýárspeningarnir voru líka vel úti látnir.
MAÐURINN: Gáff-hjónin hérna við hliðina gáfu fimmtán mörk!
KONAN: En þau lásu sósíalistablaðið enn 1932, og meira að segja í maí 1933
flögguðu þau með svart-hvít-rauða fánanum!
Siminn hrinf'ir.
mapurinn: Síminn!
27