Tímarit Máls og menningar - 01.04.1967, Blaðsíða 55
MeS írsku, kvikmyndajólki
sem sýnd hefur verið daginn áður á
vegum klúbbsins. Andrúm þessahóps,
sem hér kemur saman til að ræða
hugðarefni sín hefur eitthvað safnað-
arlegt við sig svo ekki sé gripið til
líkingarinnar við frumkristni. Pessi
félagsskapur hefur það á stefnuskrá
sinni að tryggja meðlimum sínum
frábær verk á sviði kvikmyndagerðar
þau sem kvikmyndahúsin ekki sýna.
Þetta er einn elsli félagsskapur sinnar
gerðar, stofnaður 1936, enn þann dag
i dag hefur þó starfsemi þessa hóps
ekki fengið opinbera viðurkenningu
sem listastarfsemi. Sjöunda grein list-
anna er ekki viðurkennd í írskum
ráðuneytum. Hér hefur þessi starf-
semi aukist líkt og í útlegð frá sam-
félaginu, við megna andúð kvik-
myndahúsaeigenda fyrst í stað — en
þeir hafa nú raunar séð að sér á
allra seinustu árum eftir að ljóst varð
hvernig starfsemi þessa félagsskapar
hefur mótað hópa fólks með ákveð-
inn smekk fyrir kvikmyndir, hópa
sem treysta má að haldi áfram að
sækja kvikmyndahúsin eftir tilkomu
sjónvarpsins, ef því er boðið nokkuð
við þess hæfi. Þannig hefur þessi
starfsemi hj álpað kvikmyndahúsun-
um til að komast yfir kreppuna sem
leiðir hvarvetna af tilkomu sjónvarps-
ins. Einnig má telja það til viður-
kenningar á starfseminni, að nú hef-
ur félagsskapurinn fulltrúa í dóm-
nefnd kvikmyndahátíðarinnar í Cork,
en sú hátíð nýtur vaxandi virðingar
þótt hún hafi upphaflega fremur ver-
ið skipulögð vegna írskra ferðamála
en kvikmyndalistarinnar.
A vegum klúbbsins starfa líka æf-
ingahópar og hér á þessum gólfum
hafa margir þeirra, sem nú eru að
baxa við fullburða kvikmyndagerð á
írlandi stigið sín fyrstu skref á því
sviði. Colum O’Laoghaire segir raun-
ar með dæmigerðri írskri hundsku,
að þetta sé í hæsta máta vafasöm
þjónusta við fólk, sem kannske hefur
ekkert til saka unnið. Hér gerði hann
sjálfur sínar fyrstu tilraunir á þessu
sviði á árunum uppúr seinna stríði
og hefur síðan þráast við kvikmynda-
gerðina af undraverðri þrjósku og
dugnaði. Raunar hefur hann orðið
að hafa annað með — ljósmyndun
og allt niðrí heildsölu — til að hafa
í sig og á því tækifæri til kvikmynda-
gerðar buðust ekki nema þegar félög
eða stofnanir þurftu að nota kvik-
myndir til áróðurs. Þannig gerði
hann einmitt sína þekktustu mynd
Water Wisdom (Vatnsspeki) fyrir
heilbrigðismálaráðuneytið, sem þurfti
að örva smábændur á afskekktum
stöðum til að starfa saman að vatns-
veitugerð. Sú mynd fékk 1. verðlaun
á hátíðinni í Cork 1962 enda öldung-
is furðanlegt hvernig höfundinum
hefur tekist að gera þurrt áróðurs-
efni að meinfyndinni og ísmeygilegri
lýsingu á þessum afskekktu héruðum
og íbúum þeirra — í þessari mynd
birtist tvímælalaust óvenju hæfileika-