Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Blaðsíða 55
Krafa um afnám skóla — Abrar menntaleidir
daglegri notkun, s. s. í verksmiðjum, á flugvöllum eða bóndabæjum — en
höfð þar tiltæk fyrir nema sem gerast lærlingar eða kjósa frístundanám.
I öðru lagi þarf kunnáttu- og þekkingarmiðlun þar sem fólk getur skráð
kunnáttu sína og með hvers konar skilyrðum það vill miðla henni til
annarra, sem vilja tileinka sér hana. Þar lætur það skrá heimilisfang sitt og
síma ásamt heppilegum viðtalstíma.
I þriðja lagi þarf að auðvelda samskiptamöguleika þannig að ungir sem
gamlir geti skráð og fengið birt á viðeigandi stöðum hvers konar námi eða
athugunum þeir vilja taka þátt í með öðrum þannig að áhugamenn um hin
ólíkustu efni nái saman og geti hjálpast að.
Loks þarf að mati Illich að gefa út lista eða skrár með heimilisfangi,
símanúmeri og eigin upplýsingum kennara og kunnáttumanna sem vilja
selja þjónustu sína. Jafnframt þurfa þeir að tilgreina með hvaða kjörum og
skilyrðum þeir veita hana. Velja ætti nöfn í slíkar skrár með hliðsjón af mati
fyrri nemenda slíks kunnáttufólks og með því að leita álits sem flestra er til
þekkja.
I kaflanum “Learning webs” í bók sinni, Deschooling Society greinir Illich
síðan ítarlega frá hvernig hann telur að slíkt kerfi geti risið og starfað og
leggur sig jafnframt fram um að benda á hvernig með því sé hægt að gefa
kennurum, skólum og ýmsum stofnunum samfélagsins gagnlegra, skemmti-
legra og þroskavænlegra hlutverk en þær hafa í núverandi skipan. Greining
Illich á þessu efni og tillögurnar sem hann setur fram eru að mínum dómi
svo skýrar og nákvæmar að fráleitt er að liggja honum á hálsi fyrir óljósa eða
órökstudda framsetningu. Raunar tel ég vart hugsanlegt að komast miklu
lengra í greiningu á ástandi og lýsingu á nýjum leiðum en lesa má í verkum
Ivan Illich um það efni sem hér hefur verið drepið stuttlega á.
Þeir sem ekki þykjast skilja hvað þeir, sem stefna að afnámi hefðbundinna
skóla, eru að fara, eiga kost á enn ítarlegri og nákvæmari lýsingu en Illich
hefur gefið á því sem getur tekið við. Hér á ég við bókina Instead of
Education. Ways to help people do things hetter sem John Holt sendi frá sér
árið 1976. Þar er m. a. að finna lýsingu á framkvæmd ýmissa hugmynda af
svipuðum toga og Illich lýsir. Holt segir t.d. frá starfi í nágrenni við sig,
í Beacon Hill Free School sem starfaði með námsflokkasniði þannig að hver
sem vildi mátti bjóða þar námskeið í hverju sem var. Engra réttinda var
krafist af „kennurunum" en ef nemendurnir hættu að sækja tíma þeirra var
námskeiðið lagt niður. Ekkert námskeið var endurtekið nema það hefði
verið vel sótt og um það beðið. Skólinn átti ekkert húsnæði en notaði ýmsa
fundarsali og einkahúsnæði fyrir starfsemina. Gefin var stutt lýsing á
viðfangsefnum hvers námskeiðs, hvort sem um reiðhjólaviðgerðir, ritleikni,
nýjan skáldskap eða grundvallaratriði í örtölvutækni var að ræða. Fram-
405