Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Blaðsíða 72
Tímarit Máls og menningar
How with this rage shall beauty hold a plea,
Whose action is no stronger than a flower?
Hjá Helga tekur þetta blóm á sig talsvert aðra mynd:
Hve mætti viðnám veita fegurð tær
sem vígi hlóð úr skýjum sólarlags?
Hér hleður Helgi hvorki meira né minna en heilt vígi úr „skýjum
sólarlags“ í stað blómsins og má það í senn kallast róttæk og skáldleg
breyting sem gerir línuna allmiklu íburðarmeiri en um leið
loftkenndari, þótt meginhugsunin í þeim raskist ekki. Rétt aðeins kemur
fyrir að það halli fullmikið í einstökum línum á meginhugsunina gagn-
vart myndmáli, svo sem þegar hinar fleygu línur:
So long as man can breathe, or eyes can see,
So long lives this, and this gives life to thee.
eru þýddar
og meðan andar líf og sjónin sér
þar sífellt ljómar fjör í augum þér.
en þá verður þetta áherzlulausa „þar“, sem stendur á undan höfuðstafn-
um, talsvert útundan við hliðina á hinu tvítekna „this“ á enskunni þar
sem átt er við skáldskapinn sem lífgjafa eða einhvers konar reisupassa
til ódauðleikans, en síðasta línan verður hins vegar þeim mun mynd-
rænni hjá Helga fyrir vikið. Þessi dæmi um frávik eru síður en svo
tilfærð hér í því skyni að heimfæra upp á Helga formúluna traduttore
traditore heldur til að minna á að trúmennska sú sem þýðanda þarf að
prýða er trúmennska við andann en ekki bókstafinn, og krefst því af
honum hugkvæmni engu síður en nákvæmni.
Það er ekki laust við að þau skáld á enska tungu sem í bókinni fylgja á
hæla meistarans frá Stratford falli nokkuð í skuggann fyrir trölli því og
það jafnvel þótt þeir heiti Milton eða Pope. En um átjánhundruð eða á
þeim tíma sem kenndur er við rómantík er gífurleg gróska í enskri
ljóðlist. Þá koma fram mörg og sundurleit skáld og sum hafa verið
auðkennd með nafngiftinni „vatnaskáldin". Af kveðskap flestra þessara
skálda fáum við í bókinni vel valin sýnishorn, en þar ber hæst Words-
422