Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 111
Með hjálp steinsins tekst Sólarblíðunni og Sesselíu að gera tískudrottninguna hættulausa. En þar sem þær kunna ekki nógu vel með svona töfrastein að fara verður hann þess valdandi að mamma Sesselíu minnkar óvart svo að hún verð- ur á stærð við Þumaling. Sólarblíðunni líst nú ekkert á og er hrædd um að lenda í fangelsi fyrir að gera svona lagað. Hún fer í ofboði að leita að Stebba, stráknum sem lánaði henni steininn því hann kann á hann. A meðan nýtur Sesselía þess að mamma hennar er lítil en hún stór og hermir efdr uppeldisaðferðum móður- innar henni til sárrar mæðu auðvitað. Stebbi kemur og stækkar mömmuna en börnin hafa sýnt henni að þau geta gripið til sinna ráða og líklega vogar hún sér ekki að misnota foreldravald sitt framar. Þar með má segja að Sólarblíð- unni hafi tekist ætlunarverk sitt með góðra hjálp. I lokakaflanum er saga Stebba skýrð og jafnframt opnuð leið inn í nýja og spennandi sögu. Stebbi er nefnilega strákur úr öðrum heimi í á- lögum og Sólarblíðan leysir hann úr á- lögum með kossum. Síðan býður Stebbi, sem heitir í raun Kíris, Sólarblíðunni að koma með sér í aðra heima. . . . eftir smástund svifu þau burtu með lokuð augun, hún og Kíris, langt langt burtu, áleiðis til Klakavara. En það er önnur saga sem ekki verður sögð að sinni. (77) Á þeim orðum endar sagan. Eins og sjá má er í þessum söguþræði að finna þónokkurn skyldleika við gömlu ævintýrin. Þarna er að finna þrí- minnið (Sólarblíðan svindlar sér í þrjá strætóa), töfrasteinn er einnig þekkt minni úr ævintýrunum og einhver sem er í álögum og er leystur úr þeim með Umsagnir um bxkur kossi. Fleira af þessu tagi er að finna í sögunni. Bæði í byggingu og persónusköpun er að finna áhrif frá ævintýrum. Eftirfar- andi söguþráður er gegnumgangandi í mjög mörgum ævintýrum og má kalla minni: Hetjan leggur að heiman í þeim erind- um að leysa af hendi erfiða þraut. Ein- hverjar hindranir eru á leiðinni en einnig hittir hún oft einhverja sem eru í vanda staddir og hjálpi hetjan þeim fær hún að launum töfragripi eða góð ráð sem koma að notum við lausn þrautarinnar. Sagan endar á átökum milli hetju og skúrks þar sem hetjan sigrar og hefur þar með leyst þrautina. I lokin kemur hetjan heim sem sigurvegari. Beri maður söguþráðinn í Sólarblíðunni, Sesselíu og mömmunni í krukkunni saman við þetta sést skyld- leikinn augljóslega. Hetjan okkar Sólarblíðan er í hlutverki hetjunnar í ævintýrinu. Aðferðir höfundar við persónusköpun eru um margt líkar að- ferðum ævintýranna. Við kynnumst persónunni í gegnum það sem hún gerir. I upphafi er Sólarblíðan ein heima í stóra húsinu sem foreldrar hennar eiga. Þau eru í útlöndum í fríi og í fyrstu bókinni um Sólarblíðuna losaði hún sig við yfir- stjórann sem átti að sjá um uppeldið á meðan. Já, ef hún hefði kært sig um hefði hún getað lifað aldeilis stórbrotnu lífi þangaðtil mamma hennar og pabbi kæmu heim úr útlandinu. En í stað- inn ákvað hún að fara og reyna að hjálpa Sesselíu, stelpu sem hún hafði kynnst og átti skelfilegan pabba og ennþá skelfilegri mömmu. (5) Sólarblíðan er góð í sér og vill hjálpa 461
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.