Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 124
Umsagnir um bækur KVEÐJUR Ólafur Jóhann Sigurdsson Ad lokum Kvæði Mál og menning Reykjavík 1988 55 bls. í þessari ljóðabók birtast kvæði sem Ól- afur Jóhann lét eftir sig í handriti þegar hann dó á síðastliðnu sumri, og voru flest fullfrágengin til prentunar. Prentuð hafa verið tvö kvæði sem skáldið var enn að vinna við, og er það vel ráðið. Mjög hefur verið vandað til útgáfu bók- arinnar, þótt hún sé ekki þykk, bæði af hálfu þeirra sem bjuggu texta til prent- unar og Máls og menningar. Kápa og bókarskreytingar Jóns Reykdals eru listaverk, gerð af þeirri fágun og hóg- værð sem hæfir ljóðum Ólafs Jóhanns. í Að lokum eru 21 kvæði og er þeim skipt í fjóra flokka. I upphafskvæðinu, sem nefnist „Frumtáknavísa“, eru settar fram sem andstæður nútímamenning „úr áli og plasti,/úr stáli og gleri“ og leit þess sem óskar að „rata mætti að lífsvon um löngu gengin spor.“ Hér er komið að stefjum sem Ólafi Jóhanni voru afar hugleikin og sóttu svo fast á hann að jaðrar við örvæntingu í mörgum kvæð- um hans, örvæntingu sem þó er ávallt veitt hörð mótspyrna. Þessi andúð á „skrumbáknum" nútímamenningar og uggur um framtíðina er tjáður víðar í bókinni, í kvæðum eins og „Um upp- sprettur á Fróni og erlendis," „Nótt“ og fleirum. Menningargagnrýni er þó ekki sterkasti þráðurinn í þessari ljóðabók né sá gildasti, heldur hin næma náttúru- skynjun og dapurlegur en alls ekki ör- væntingarfullur feigðargrunur. Nátt- úrutáknin, og þá ekki síst hinar niðandi lindir, bera sem fyrr uppi lífstrú og lífs- játningu skáldsins, eins og í stuttu og einföldu, gullfallegu kvæði, sem nefnist „Að liðnum vetri“. I stað valds, stafs eða sprota, í stað þess að ljósta klettinn leiftursnöggt og harðlega kemur birta, kemur ylur, kemur þú glófingruð við klökuga brynjuna. Og sjá: Vatn sprettur fram, vorblá lind fer að niða. Efnismeira og dulúðugra er kvæðið „Að Hreðavatni", þar sem ást á náttúr- unni fylgir skilningur á dulúð hennar; segja mætti að vegir vatnsins séu órann- sakanlegir mannlegri skynjun. Tilfinning fyrir návist dauðans flétt- ast saman við náttúruskynjunina í kvæðinu „Að Alftavatni 1968“, og væri hægt að láta sér detta í hug að skáldið hafi leitað á bernskuslóðirnar á fimm- tugsafmæli sínu, á vit þeirra linda sem skáldskapur hans er sprottinn af: „Og kliðan linda kunnugleg heyrist enn á 386
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.