Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 6
Ef maður á miðöldum hefði skyndilega komið auga á eitthvað svipað útvið sinn sjóndeildarhring — til að mynda þegar hann var á veiðum — hefði hann að lík- indum haldið hann væri vitni að geming- um djöfulsins, hann hefði kropið á kné og beðið um miskunn sér og sínum nánustu til handa. Hvað sameinar heimsmynd þessa mið- aldamanns og drenghnokka nútímans? Að minni hyggju er það nokkuð sem er afar mikilvægt. Rætur beggja standa mun dýpra í því sem heimspekingar nefna „líf- heim“ eða „náttúruheim“ heldur en geng- ur og gerist um flest fulltíða fólk á okkar tímum. Þeir hafa ekki enn fjarlægst þann heim sem er þeim handföst og persónu- legá reynsla, þann heim sem hefur sinn morgun og sitt kvöld, sitt „niðri“ (jörðina) og sitt „uppi“ (himininn), þar sem sólin rís hvem dag í austri, gengur yfir him- inhvolfið og sest í vestri, og þar sem hug- tökin heima og heiman, gott og illt, fegurð og ljótleiki, nálægð og fjarlægð, skyldur og réttindi búa enn yfir afar lifandi og ákveðinni merkingu. Þeir hafa enn ekki fjarlægst þann heim sem greinir skilin milli þess sem við þekkjum náið og ber að annast og hins sem liggur handan sjón- máls og §©m okkur ber að lúta í auðmýkt því það er sveipað hulu leyndarinnar. Þessi náttúruheimur er skynjaður milli- liðalaust af eigin vitund sem þar með stað- festir hann. Hann er sá reynsluheimur sem okkur stendur ekki enn á sama um, við erum honum nátengd, hvert og eitt okkar, með því að elska, hata, heiðra og lítils- virða. Tengslin sitja í arfleifð okkar og áhugamálum. Þetta er svið gleði okkar og sársauka; hughrifa sem ekki verða endur- tekin né yfirfærð og firrast aldrei. í þeim heimi erum við með nokkrum hætti sam- ábyrg, það er heimur okkar persónulegu ábyrgðar. I þessum náttúruheimi hafa grunnhugtök á borð við réttlæti, sóma, brigðmæli, vináttu, ótryggð, dirfsku eða samúð, innihald sem fullkomlega er hægt að festa hendur á; þau eiga við raunveru- legt fólk og hafa harla víðtæka merkingu í raunverulegu lífi. í sem skemmstu máli: Þessi hugtök eru enn marktæk. í grunni náttúruheimsins eru gildi sem virðast hafa verið þar frá ómunatíð, gildi sem eru til staðar áður en við tölum um þau, áður en við rannsökum þau og tökum að efast um þau. Innra samræmi gefur því heiminum einskonar frumforsendur, sem felast í að hann lifir og er starfhæfur, einmitt vegna þess að eitthvað er til hand- an sjóndeildarhringsins, utan þessa heims eða ofan, eitthvað sem skilningarvit okkar ná ekki til og fá ekki hróflað við en s£m’ einmitt þess vegna gefur heimsbygging- unni fasta undirstöðu, skipan og lag; þetta er hin hulda uppspretta allrar reglu og venju, og þaðan koma gildandi boð, bönn og viðmið. Hinn náttúrulegi heimur ber í sér — vegna innsta eðlis síns — forsendu hins altæka, og það er einmitt hið altæka sem markar heiminum stað og stefnu, fær honum líkama og sál. Væri ekki hið al- tæka, yrði heimurinn óhugsandi, fárán- legur og óþarfur. Þess vegna ber okkur að virða hið altæka. Sérhver tilraun til að hafna því, ná valdi á því ellegar taka ann- að framyfir leiðir til þess drambs sem er falli næst. Það fengu Don Juan og Fást að gjalda dýru verði. Reykháfurinn sem mengar himinhvolf- ið er mér ekki aðeins til vitnis um leið- indamistök þeirrar tækni sem vanrækir að reikna með „vistfræðilegum þáttum“ en 4 TMM 1990:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.