Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 76
Síðasta áratuginn hefur íslensk skáldsagnagerð staðið með blóma sem ekkert lát virðist á . . . Samtfinnst manni skorta fjölbreytni í efnistökum . . . hafa jafn margar frambærilegar skáldsög- ur komið út á ári og nú hefur gerst fyrir hver jól þennan áratug. Þetta á sér ein- faldlega þá skýringu að fleira fólk sinnir skáldskap vakið og sofið en áður hefur verið og Launasjóður gerir því kleift að helga sig skriftum, hluta ársins að minnsta kosti. Og hjá atvinnurithöfundum verða efnistök öll festulegri en hjá áhugamönn- um, með einhverjum undantekningum auðvitað, skrifin verða markvissari og meðvitaðri, sögumar þéttari. Samt finnst manni skorta fjölbreytni í efnistökum, hvað sem líður fjölbreytninni í ógæfu hinna óhamingjusömu fjöl- skyldna; einhvem veginn hefur maður á tilfinningunni að íslenskum skáldsögum svipi um of saman — með einhverjum undantekningum auðvitað. Þetta er til- finning, þetta er huglægt mat. íslenskar skáldsögur er alltaf tvöhundr- uð og eitthvað blaðsíður. Þær eru þar af leiðandi þröngar. Persónugallerí er fá- breytt og takmarkað, sögutími oft stuttur, og sé hann lengri er honum þjappað mjög saman í innri tíma, honum er þá safnað saman í einn brennidepil frásagnar svo manni á að finnast allt vera að gerast í senn, allur tími sé nútími, allt gerist aftur, tíminn sé hringur, spírall eða bara hringl. Umhverfi er rækilega afmarkað og sjald- an lýst með meiri tilþrifum en táknlegur tilgangur útheimtir. Stíllinn er andstuttur, fullur af líkingum sem eiga að afgreiða málin í frásagnarþrengslunum, lifandi samræður fáséðar, gamansemi talin til þess fallin að drepa málum á dreif. Hann er fábreyttur, fagurfræðin kveður á um einn stíl alla bókina í gegn, það er ekki algengt að rekast á gönuhlaup og spuna höfundar að skemmta sér yfir íþrótt sinni. Andrúmsloft bókanna verður einhæft. Það verður þröngt. Nútíð er vinsælust tíða og notuð til þess að ná sannfærandi hug- renningablæ, en fyrir vikið verður rennsli frásagnarinnar erfiðara, lesandi fær ekki á tilfinninguna að verið sé að segja honum sögu heldur fái hann að skyggnast inn í heilabú. Nútíðin er í skáldskap almennt sjaldan notuð til að segja sögur, nema þegar gripið er til „praesens historicum“ sem er eitt vinsælasta stílbragð íslenskrar munnlegrar frásagnarlistar („segi ég . . . heldurðu að maðurinn fari þá ekki bara af stað ...“), þegar auka skal spennu í miðri frásögn. Sjónarhom er í þessum skáld- sögum einatt takmarkað við fyrstu eða þriðju persónu og hugrenningastílnum fylgir þrálát tilhneiging til slitróttrar setn- ingagerðar með tilheyrandi uppnámi setningahluta, frumlags eða umsagnar (Tilbúið dæmi: „Sit við dúklagt borðið. Hugsa. Hann ekki kominn. Beðið lengi.“). Þetta er vissulega vænleg aðferð við að koma til skila sögum af einkennilegu fólki, gefur kost á að deyfa mörk veru og heilaspuna og um leið þeirri heimspeki að þau mörk séu óljós. Hún styrkir kennd lesanda um örlög, þjóðfélagsleg, kyn- bundin eða yfirskilvitleg, áskapað hlut- skipti; hún gefur kost á að binda verkið 74 TMM 1990:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.