Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 87
fræðimennina sjálfa til óbóta. Fyrir þeim liggur nú ekki annað en snúa heimleiðis eftir misheppnaðan rannsóknar- leiðangur, og um borð í skipinu sem flytur þá burt frá ströndum Albaníu les Max úr nýútkomnu dagblaði fyrir Willy. Réttar- höldin y fir Frok og misyndismönnunum eru í þann veginn að hefjast, og þótt Zog konun- gur fyrsti stefni að því að hafa sem best samskipti við Júgóslava og forðist að sak- fella þá, fordæmir blaðið harðlega þetta tilræði við albanska menningu, sem tví- mælalaust sé runnið undan rifjum Serba: sé þetta ekki í fyrsta sinn sem þeir ráðist á fræðimenn sem reyni að grafast fyrir um fomar rætur Illyríumanna. En í blaðinu er líka annað og meira: nýort söguljóð um Albaníuæfintýri þeirra Max og Willys, og er það í fyrsta skipti í áratugi sem slíkt kvæði hefur verið ort um samtímaviðburð. Willy, sem nú er nánast blindur, bregst und- arlega við: hann leggur hægri hönd upp að eyranu eins og fomir kvæðamenn gerðu þegar þeir kváðu sér hljóðs, og með ger- breyttri röddu byrjar hann að kyrja sögu- ljóðið, „Apparat svart af sænum kom . . .“ Hann er sem sé orðinn eins og Hómer . . . Þannig sigldu Max og Willy heimleiðis með sárt ennið, en hugmynd þeirra hvarf samt ekki úr sögunni við ófarir þeirra, því þetta sama ár, 1935, var enn annar Hóm- ersfræðingur, Milman Parry, á ferli með annað apparat í heimalandi munksins mjúk- mála, Serbíu, og fékkst þar við að taka upp kvæðaflutning sagnasöngvara með það fyr- ir augum að leysa gátuna um kviður Hóm- ers. Var hann heppnari en íramir tveir og lauk verki sínu þar í landi án þess mér vitanlega að vera laminn eða neyddur til að skrifa æfisögu Alexanders Júgóslavíukon- ungs, og síðan komst hann aftur til Harvard- háskóla án þess að hafa orðið fyrir nokkurri mímetískri myndbreytingu en með mikið magn af upptökum af þeim serbnesku sögu- ljóðum, sem munkurinn vildi ekki láta efast um að væm uppmnalegri en hin albönsku. Meðal þeirra var reyndar nýort kvæði um Serbíuæfintýri hans sjálfs. Með því að styðjast við rannsóknir á þessu efni og öðru sem safnað var í ferðalögum síðar settu Milman Parry og lærisveinn hans Albert Lord svo fram kenningu, sem þeir töldu að útskýrði ekki einungis hvemig Ilionskviða og Ódysseifskviða hefðu orðið til heldur gerði fulla grein fyrir „munnlegri kvæða- hefð“ yfirleitt, þ.e.a.s. kvæðahefð hvar og hvenær sem væri sem styddist ekki á nokk- um hátt við ritlist, en það var allmiklu meira en Max og Willy virðast nokkum tíma hafa ætlað að gera með sínum eigin rannsóknum. Af þessum sökum hefur kenningin síðan verið nefnd því virðulega nafni „munnlega kenningin“ — „the oral theory“ — og nokkrum áratugum síðar ræðst nú Gísli Sig- urðsson fram á ritvöllinn í ádrepu sem hann nefnir „Fordómar fáfræðinnar", vopnaður þessari munnlega kenningu frá hvirfli til ilja til að munnhöggvast við mig útaf stutt- um ritdómi sem ég skrifaði hér í Tímarit Máls og menningar um útgáfu hans á Háva- málum og Völuspá.' Nú sýnir reynslan að það er oft á tímum harla tilgangslítið og jafnvel mannskemm- andi að flækjast út í íslenskar ritdeilur. Til- efni þeirra ergjaman lítilfjörlegt, og fyrr en varir eru deilurnar famar að snúast um smá- atriði sem enginn man lengur eftir eða lætur sig skipta nokkm minnsta máli og koma upphaflegri kveikju orðaskaksins jafnvel ekkert við, svo sem ýmis þau forn spjöll fira sem helst er að finna í kirkjubókum lands- ins. Þegar Gísli tekur sér fyrir hendur af lítilli rósemi hugans að svara fáeinum at- hugasemdum um útgáfu hans, forðast hann ekki þennan gamalkunna stíl, og mætti reyndar segja að andi skrifanna, heitin sem hann velur ritdóminum — „vanþekking“, „fáfræði", „fordómar“ og „gífuryrði“ — og ásökunin um einhvers konar banatilræði gegn fræðistörfum hans sjálfs, bjóði fremur TMM 1990:1 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.