Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 26

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 26
tilvistar okkar, „ég“-ið eða sjálfið. Það felur í sér að tiltekinn maður sé til í „tvíriti", tveimur nákvæmlega eins eintökum. En þessi augljósa merking er þó ekki næg skil- greining, því tvífarinn er iðulega að ein- hverju leyti frábrugðinn frummyndinni: Tvífarinn getur verið betri, en er þó sýnu oftar verri, hann er stundum sjáanlegur en oftast ósýnilegur, hrærist semsé á öðru til- vistarsviði. Sé innri maður hans annar, get- ur útlitið líka verið annað en fyrirmyndar- innar. En hvers vegna er þá talað um tví- fara? Öðru fremur vegna þess að tvífarinn er órjúfanlega tengdur frummyndinni, hann er til handa henni og vegna hennar, hvort heldur er til góðs eða ills. I bókmenntafræði er tvífaraminnið af þessum sökum notað í víðri merkingu: Tví- farinn getur verið augljós endurgerð pers- ónu, eins konar skuggi, málverk eða spegil- mynd; hann getur verið annar en persónan og jafnvel gerólíkur henni en tengdur henni órjúfanlegum böndum; loks er líka talað um tvífara þegar sami maður tekur á sig mis- munandi gervi, geymir tvo menn, og er sagan um Dr. Jekyll og Mr. Hyde eflaust frægasta dæmið um þá notkun tvífaraminn- isins. Þetta eru helstu gerðir tvífarans, en því er svo við að bæta að um eiginlega tvífarasögu er ekki að ræða nema tvífarinn leiki að minnsta kosti einhverju sinni sjálfstætt hlutverk, óháð fyrirmyndinni. Fyrstu tvífararnir: Skugginn og spegillinn Aðrir segja, að þegar Sæmundur fróði gekk upp riðið og kom út í dymar á Svartaskóla, þá skein sólin móti honum, og bar skugga hans á vegginn. Þegar nú kölski ætlaði að taka Sæmund, þá sagði hann: „Eg er ekki seinastur. Sérðu ekki þann, sem á eftir mér er?“ Kölski þreif þá til skuggans, sem hann hélt mann vera; en Sæmundur slapp út, og skall hurðin á hæla honum. En upp frá þeirri stundu var Sæmundur jafnan skugga- laus, því kölski sleppti aldrei skugga hans aftur. Islenskar þjóðsögur og -2 œvintyri. Tvífarinn er önnur gerð sama sjálfs, og fæðist af þeirri hugmynd sem til mun í flestum trúarbrögðum að maðurinn sé ekki allur þar sem hann er séður, heldur bæði þessa heims — og annars. Tvífarinn er því ein birtingarmynd þeirrar miklu (tál)vonar mannsins að hann hafi sál og geti orðið frjáls af dauðlegum líkama sínum. Svo það er ekki nema von að hann hafi lengi verið til í bókmenntum: Rómverjar hinir fomu töluðu um „alter ego“, annað ég, forfeður okkar vissu þá menn til mestra afreka lík- lega sem ekki voru einhamir, rómantísku skáldin þýsku kölluðu fylgju sína „Doppel- gánger“, samgengil einsog Halldór Lax- ness þýddi það, og þau orð eins brautryðj- anda nútímaljóðlistar, Frakkans Rimbauds, að hann væri annar, urðu fleyg. Grunnmyndir tvífarans í goðsögnum, þjóðtrú og svonefndum frumstæðum trúar- brögðum eru skugginn og spegillinn. Ef- laust eru þess dæmi frá örófi alda að skugginn sé tákn sálarinnar — enda hentar hann vel til þess þar sem hann er í senn utan við manninn og þó óaðgreinanlegur frá honum. Austurríkismaðurinn Otto Rank rekur í verki frá árinu 1925, sem sígilt er orðið í tvífarafræðum, fjölmörg dæmi um fornan átrúnað tengdan skuggum. Meðal svokallaðra frumstæðra þjóðflokka gat það 24 TMM 1990:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.