Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 94
bók hefur farið forgörðum að mestu (30 blöð varðveitt af einum 180). Áður en þetta gerðist voru þó skrifuð upp eftir þeim pappírshandrit, og verða útgefendur nú á dögum að byggja á þeim að vemlegu leyti, en sá er gallinn áþessum uppskriftum að þar er texta skinnbókanna ekki haldið aðskildum og gerðunum tveimur þannig víða blandað saman. Hér virðist nú komin býsna torráðin flækja og við því að búast að mörgum reynist villugjamt að reyna að rekja hana sundur. Fram að þessu hafa fræðimenn jafnan fylgt einum leiðarþræði í útgáfustarfi sínu og hann er sá að reyna að komast sem næst „upprunalegum texta“ verks- ins. Sú hugsun sem býr þar að baki kemur glögglega fram hjá Bimi M. Ólsen: Sjálfstætt rit er Sturlunga ekki. Höfund- ur hennar tekur að eins upp eldri höf- unda svo að segja óbreytt. Hann er safnandi en ekki sjálfstæður sagnamað- ur. (...) Ef vjer ættum völina, þá mund- um vjer heldur kjósa að eiga allar hinar einstöku sögur óbreyttar og sjálfstæðar enn þetta stóra safh. Þessi leiðarþráður hefur þó teygt menn mis- jafnlega langt. Kristian Kálund, sem gaf út helstu fræðilegu útgáfu Sturlunga sögu 1906- 1911, valdi þann kostinn að fylgja Króksfjarð- arbók, sem hefur að geyma „eldri gerðina", svo langt sem hún nær, en fylla svo upp með Reykj- arfjarðarbók og pappírshandritum. Aðrir útgef- endur hafa viljað ganga enn lengra og reynt að vinsa hinar „upphaflegu sögur“ út úr samsteyp- unni og prenta þær hverja fyrir sig: hafa þeir þannig stefnt að því að „endurgera" sögumar í samræmi við það sem Bjöm M. Ólsen taldi að væri æskilegasti valkosturinn. Þar sem hug- myndir manna um samsemingu Sturlungu hafa breyst og þróast hefurþetta ekki alltaf verið gert með sama hætti, en þessari stefnu hefur verið fylgt í öllum alþýðuútgáfum sem prentaðarhafa verið á íslandi og einnig í Reykjavíkurútgáf- unni frá 1946, þar sem gengið er einna lengst í þessum efnum. Þetta er því sá Sturlungutexti sem flestum lesendum er kunnur. Utgáfunefnd Svarts á hvítu hefur hins vegar tekið þann kost að fara allt aðra leið, en hún er sú að „halda Sturlunga sögu sem safnriti" eins og segir í inngangi: textinn er því prentaður sem ein samhangandi heild eins og hann er í sam- steypunni, þó þeir textar sem talið er að safnið hafí verið gert úr séu auðkenndir með fyrir- sögnum innan homklofa og „hlaupandi titlum“ á hverri opnu. Þótt þannig sé farið eftir útgáfu Kristians Kálunds og texti Króksfjarðarbókar lagður til grundvallar þar sem hann er fyrir hendi, er víða vikið frá honum og farið eftir texta Reykjarfjarðarbókar. Þetta skýra útgef- endur m.a. á þennan hátt: Lesbrigði úr Reykjarljarðarbók og eftir- ritum hennar em valin umfram Króks- fjarðarbók annars vegar þar sem texti hinnar síðamefndu er sýnilega brengl- aður og hins vegar stundum þar sem Reykjarfjarðarbók og eftirrit hennar segja frá á annan veg en Króksfjarð- arbók og útgefendum þótti betur fara.“ (Inngangur, bls. xcvi). En þetta er þó ekki nema hluti málsins: út- gefendur hafa einnig tekið þá stefnu að fara eftir yngri gerðinni „þar sem meira er til frásagnar" og láta það sjónarmið ráða „að halda til haga sem mestu úr báðum gerðum Sturlunga sögu lesendum til fróðleiks og ánægju“ (inngangur bls. xcvii). Hér er því ekki verið að hverfa aftur til stefnu Kálunds andstætt þeim útgefendum sem vildu brjóta textann í sundur, heldur er annað og meira íhúfi: útgefendurfallafrá þeirri meginreglu að stefna að því að birta eins „upp- runalegan texta“ og hægt er, samkvæmt venju- legum skilgreiningum — þótt þessi vinnubrögð séu réttlætt með því að til sliks þyrfti að gera tímafrekar textarannsóknir, hefði áreiðanlega víða verið hægt að birta „upprunalegri texta“ en gert er — og í staðinn valinn yngri texti en „betri“ að dómi útgefenda og efnismeiri. 92 TMM 1990:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.