Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 104
takast á við einn lykilatburð í lífi sínu. Hann er tákn refsingar og valds, hvort sem vísunin til hans er trúarleg svo sem hreinsunareldurinn (14) eða frásögn föður Axels af eldinum í þurrk- urum síldarbræðslunnar sem nefndur var víti (37). Bruni húss Orra er refsing sem hann verð- ur að taka út fyrir að hafa gengið á hlut Axels hvort sem sú refsing er réttlát eður ei. Orri beitir eldinum sjálfur sem hótun eða valdi eins og þegar hann hótar að brenna kofa strákanna sem eru að hrekkja hann (56). Og eldspýtumar sem honum eru gefnar á togaranum eru ógnun við hið nýja líf hans í sögulok (204); að minnsta kosti læðist sá grunur að lesanda að Orri eigi eftir að brenna ofan af þeim Axel húsið og loka þar með hringnum. Atriði sem einnig kemur nokkuð oft fyrir er fallið og hræðslan við að detta sem fylgir Axel eins og skugginn. Þetta er athyglisverð táknmynd þess syndafalls sem Axel gengur í gegn um þegar hann kveikir í húsinu og um leið einkennandi fyrir hræðslu hans við djúp eigin sjálfs. Nákvæma mynd af átökum Axels og háskans er að finna í upphafi fimmta kafla (34) þegar Axel hrasar á brekku- brúninni ofan við þorpið og fellur niður. Mjúk lending hans er táknræn fyrir þá vemd sem borgaralegt umhverfí hans veitir honum og hvemig það tekur af háskann sem í fallinu felst. Tilvistarkröm Þema háska og þroska hefur verið nokkuð fyrir- ferðarmikið í íslenskri sagnagerð að undan- fömu og meðhöndlun þess oftast snúist um bemskuna og árekstra hennar við alvöru hins jarðneska lífs. Meginátök á milli persónanna í Minningum elds fara fram á þessu aldursskeiði og þau enda í dramatísku uppgjöri þeirra, öfund og óvild. Athyglisverðasti þáttur þessara átaka lýtur að Axel því árekstur hans er fyrst og fremst uppgötvun hans á sér sjálfum, þeim gimdum og þrám sem svamla í leyndum hugans. Aflið sem splundrar óskiptri sjálfsmynd bemskunnar er kynhvötin og fulltrúi hannar er María. Hún er frökk, ágeng og ákveðin og mátulega fláráð í sér til að verða að bitbeini þeirra félaga Axels og Orra. Goðsögninni um „femme fatale", hættulegu stúlkuna, hættir þó stundum til að taka ráðin af höfundi og gera Maríu að full dæmigerðri ótukt. Það er þó út af fyrir sig gleðilegt að sjá íslenskan höfund taka á hlut- verki kynhvatarinnar í mótunarsögu einstak- lingsins með þeim hætti sem Kristján gerir. Þessum meginþætti í lífi flests fólks em gerð góð skil án þess að efnið sé flatt út eða gert óþarflega groddalegt eins og oft hefúr viljað brenna við í íslenskum raunsæisverkum. Háskinn reynist hins vegar enn vera fylgifisk- ur Axels þó bemskuámnum sleppi. Mynd hans er önnur, en illúðlegur er hann samt. Þetta er hvað gleggst í þriðja hluta bókarinnar þar sem einkum er greint frá millibilsárunum í lífi Axels og Orra, þeim ámm sem Orri dvelst á stofnun- inni og Axel fikrar sig í gegn um menntakerfið, fær sér vinnu, kaupir sér hús en er ætíð einn í tilvistarlegri eymd sinni. I miðju raunsæi dag- lega lífsins teygar hann einsemdarbikarinn í botn og sá háski sem nú ógnar honum er fyrst og fremst vanhæfni hans til að takast á við fortíðina. Þó hann sé umvafinn borgaralegu ör- yggi er hann engu að síður vinalaus einbúi sem verður að skvetta í sig nokkmm vodkaglösum til að svefninn aumkvi sig yfir hann. Ekkert gerist í lífí hans sem markvert getur talist og kynni hans af hlýju kvenna em einangruð við fyrstu ástina, Maríu. Tilraun hans til að koma á sambandi við Orra í sögulok þegar Orri er út- skrifaður af stofnuninni og fer að búa í húsi Axels virðist ekki annað en endurtekning á sömu viðburðum bemskunnar, tilraun til að færa klukkuna aftur um tuttugu og þrjú ár og byrja að nýju. Minningar elds er vandað verk og vel unnið en skortir tilfinnanlega kraft til að lyfta sér upp úr hreinni og klárri fagmennsku, til að fanga þann kraft sem býr í tungumálinu. Verkið er gott dæmi um þá möguleika sem íslenskir höfundar eygja nú í raunsærri frásögn og hve langt þessi tegund skáldsagna er komin ffá nýraunsæju sögunni og hennar pyttum sem allt of margir féllu í áður en yfir lauk. Lífleysi stílsins stingur 102 TMM 1990:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.