Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 105
þó eilítið í stúf við hina byggingarfræðilegu nákvæmni. Hann skortir þann safa sem er öllum skáldskap nauðsynlegur eigi hann að dafna og braggast. Þessi vöntun verður enn sárari þegar gætt er að því að helstu prósaverk samtíðarinnar byggja einkum stíl sinn á myndauðgi og ljóð- rænum anda og í samanburði við hann virðist stfll Kristjáns stundum nokkuð bragðdaufur. Kristján B. Jónasson Spuni og saga Þórunn Valdimarsdóttir. Snorri á Húsafelli. Saga frá 18. öld. Almenna bókafélagið 1989. 437 bls. Undanfarin ár hefur verið um það rætt meðal íslenskra sagnfræðinga að ekki hafi verið lögð nógu mikil rækt við að skrifa texta sem alþýða manna geti haft gaman af. Margir hafa lagt heilann í bleyti og sumir spreytt sig á að leysa þann vanda. Þar er Þórunn Valdimarsdóttir fremst í flokki. Fyrir fjórum árum skrifaði hún afbragðsgóða bók um landbúnað í Reykjavík og í fyrra gaf hún út ævisögu séra Snorra á Húsa- felli. í fyrri bókinni beitti hún sagnfræðilegum aðferðum af hugkvæmni og úr varð nýstárleg og spennandi bók. Að þessu sinni lætur hún sér nægja fremur venjuleg sagnfræðileg vinnu- brögð, en notar hugarflugið til skáldskapar. Draumurinn er að ná sem best til sem flestra: „En til þess að ná víðari lesendahópi en sagn- fræðinga hef ég reynt að setja heimildamolana þannig saman að fleiri nenni að lesa.“ (13) Fyrirfram var Þórunn búin að boða óhefðbund- ið verk og bók sem ekki væri skrifuð „fyrir sagnfræðinga heldur upplýstan almenning."1 Miðað við vinsældir verksins hefur það tekist og er það vel. Spuming mín er hins vegar sú hvort ritið sé góð sagnfræði og hvort þetta sé leiðin út úr ógöngum andleysis og þurrpumpu- gangs sem íslensk sagnaritun er í. Ég tel að svo sé ekki. Höfundur og viðfangsefni Þórunn þráir að skynja fortíðina, heyra og sjá: „í andartak opnast þeim er sökkvir sér niður í handritið sýn inn í löngu liðna tíð“ (313). Hún talar um „innri augu“ sín og lflcir sér við mynda- vél (13). Kvartað er undan „heimildaþoku“ (52, 95) og harmað að „sögulegt skyggni“ sé ekkert (111). Barátta Þórunnar felst í því að líta söguna augum, líkt og þegar hún hugsar sér að ungling- ur fylgist með síðustu messu séra Snorra: „Hann hefur langað svo mjög að sjá andaútrekarann gamla að dagurinn bítur sig fastan í minni hans. Við náum því að sjá brot úr þessum degi með augum sveinsins." (273) Bölið er að hvers- dagslegur veruleiki séra Snorra og samtíðar- manna hans er „gjörsamlega horfínn, rétt eins og fiskurinn og fuglinn sem Snorri og sóknar- menn átu þá daga.“ (173) Fortíðin er ósýnileg, en þar kemur sagnfræðingurinn til bjargar. Hann er Galfleó með nýjan kíki, kemur auga á og veit betur: „Við sem sitjum með sjónaukann öldum síðar sjáum að Helgi þessi endar líf sitt eftir rúman áratug — fellur í læk á heimleið úr kaupstað og andast á lækjarbakkanum" (125). Sagnfræðingurinn ræður ferðinni og horfir haukfránum augum yfir sviðið: „Nú lækkum við flugið yfir veiðistöðinni í Skáladal." (155) Hann leysir gátuna, skapar heiminn: „Við heyr- um ekki hvað hann segir við nývígðan kenni- mann, með öllu ókunnan héraðinu. Mér heyrist hann segja frá högum presta í prestaköllunum sex sem liggja að Isafjarðardjúpi.“ (131) Þetta orðfæri virðist hliðstætt hugmyndum þýskrar rómantíkur í byrjun 19. aldar um eðli skálda, „trúnni að skáldsnillingnum einum birtist hinn æðsti sannleikur."2 Afstaða sagnfræðings til fortíðarinnarerflók- ið mál. Á hann að láta heimildimar tala, eins og oft er sagt, eða er hann konungur í ríki sínu? Er fortíðin til í raun og vem eða er hún sköp- unarverk sagnfræðinga sem taka hana að sér? Ég held að þama hljóti að vera ákveðið samspil og að sagnfræðingar eigi að beita einhverju í líkingu við það sem Freud kallaði „gleich- schwebende Aufmerksamkeit“ eða „svífandi TMM 1990:3 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.