Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 77
Þorsteinn Gylfason
Anaxímandros frá Míletos
Anaxímandros frá Míletos (f. 610 f.Kr.) var næstelztur og einna snjallastur
grískra heimspekinga. Hér segir frá helztu kenningum hans og því hvernig
ætla megi aö hann hafi rökstutt þær. Þá er andmælt þeirri útbreiddu
skoöun aö elztu heimspekingar Grikkja hafi ööru fremur veriö náttúru-
hyggjumenn sem höfnuöu yfirnáttúrlegum skýringum á hlutunum, og eru
leiddar líkur aö því aö Anaxímandros hafi fremur veriö rökhyggjumaöur
sem trúöi á mátt skáldlegrar rökvísi í viðureign viö gátur heimspekinnar.
Loks eru hugleiddar sögulegar skýringar á uppruna heimspekinnar meö
Grikkjum.
Eitt glæsilegasta kvæði á íslenzku frá okkar
dögum er eftir Hannes Pétursson og fjallar
um pólska stjamfræðinginn Kóperníkus
sem
hjó þessa jörð af feyskinni rót og henti
sem litlum steini langt út í myrkur og tóm.
Nú skyldi enginn ætla að ég vilji gera lítið
úr afreki Kópemíkusar. Eg vil ekki heldur
gera lítið úr kvæði Hannesar með því að
fara að þvarga við hann út af því að
Kópemíkus hafi alls ekki hent jörðinni út í
tómið. Hún var í myrku tómi þegar Kóp-
erníkus kom til skjalanna, og hann gerði
ekki annað en að flytja hana til í tóminu, úr
miðju sólkerfisins og út á eina af hring-
brautum þess. Ég hef orð á kvæði Hannesar
vegna þess eins að þar er komizt fágætlega
vel að orði, en að vísu um afrek annars
manns en Kópemíkusar. Afrekið sem
Hannes vegsamar var unnið í fomöld. Það
var Anaxímandros frá Míletos sem vann
það. Hann hjó jörðina af öllum rótum, hvort
heldur feysknum eða ófeysknum, og
fleygði henni út í tómið og lét hana svífa þar
óstudda. Með þessu tiltæki bjó hann það til
sem við köllum stjömufræði, og með því að
segja svolítið meira um stöðu jarðarinnar í
tóminu bjó hann til eðlisfræðina líka.
Kópemíkus skrifaði aldrei um annað en
stjömur og sól. Anaxímandros virðist hafa
haft brennandi áhuga á öllum hlutum. Hann
kenndi meðal annars að lífið hefði hafizt í
TMM 1991:4
75