Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 47

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 47
Iðnjöfrarnir Menn kunna að meta nokkuð misjafnlega hverjir ,,iðnjöfrarnir“ séu. Eitt er þó víst: Árni Bergmann er áreiðanlega ekki þar í hópi þó Mörður líti svo á að skáldið sé hugsanlega þeirrar skoðunar. Þetta er frá- leitt, það er alkunnugt að Árni Bergmann hefur aldrei drepið mann þó hann hafi kannski stundum reynt að drepa bækur. Tveir nokkuð sjálfsagðir kandidatar í hópinn eru hins vegar þeir kumpánar Hit- ler og Stalín sem gerðu út sín verksmiðju- skip, eins og kunnugt er, á fyrri hluta aldarinnar við mikla lýðhylli þó þeir eigi sér nú formælendur fáa. Annar undir merkjum nasisma, hinn undir merkjum sósíalisma. Ekki skal hér sett einfalt samasemmerki milli þessara stefna, sem eiga það þó óneitanlega sameiginlegt að ófáum milljónum af blásaklausu fólki hefur verið breytt í lík í nafni þeirra á þessari öld. Fleyi hins fyrrnefnda isma var góðu heilli fljótlega sökkt, en hinn hefur siglt áfram, ekki síst vegna þess að áhöfnin tók upp á því að skilgreina sig upp á nýtt við sérhver ótíðindi sem bárust af eðli og framkvæmd útgerðarinnar, sverja af sér sérhvern fráfarandi framkvæmda- stjóra. Mig minnir að á dögum Moggalyg- innar hafi þetta verið kallað ,,að breiða yfir nafn og númer.“ Afleiðingin hefur orðið sú hjá mörgum sem enn vilja kenna sig við sósíalismann að ekkert virðist nú eftir af honum annað en sá almenni húmanismi hjá „mönnum góðs vilja“, drenglyndið, réttlætið, jafnréttið og þjóð- ræknin sem ÁB mærir í grein sinni (TMM 4 1992). Þegar svo rækilega og endanlega hefur verið horfið frá öllum kröfum um sameign á framleiðslutækjunum (fyrir löngu, segir Mörður) held ég raunar að undir þessa lífssýn gætu fjölmargir tekið sem alla tíð hafa aðhyllst borgaralegt frjálslyndi, eða einhver afbrigði hins löngum hataða ,,kratisma“. Það hins veg- ar að ÁB skuli endilega vilja telja þessa jákvæðu þætti einhvern sérstaklega sós- íalískan arf fremur en t.d. frjálslynd eða kratísk áhrif á sósíalismann varð kannski öðru fremur til þess að mér fannst ansi mikil líksmurning felast í misréttmætum aðfinnslum hans að mörgu því sem ég lét hafa eftir mér í viðtalinu í TMM (sex heftum fyrr, en ekki tveimur eins og Mörður segir). Ég hélt nefnilega sjálfur, rétt eins og Mörður, að ég hefði í þessu viðtali svo sem ekki sagt um pólitík annað en „almælt tíðindi". í millitíðinni höfðu svo reyndar gerst þau tíðindi að sjálf Sov- étríkin voru lögð niður, þó ekki verði það ráðið af grein Árna. Smásaga Árna, Óvinur ríkisins. Sönn saga (TMM 1 1992), sem Mörður vitnar einmitt til, tekur þennan sögulega atburð þó fyrir og þar getur nóta bene að líta harla merkilega samlíkingu í lok sögunn- ar: Hraunelfan í Vestmannaeyjum og hrun Sovétkerfisins virðast þar lögð að jöfnu og ekki annað að sjá en höfundarsamúð fylgi þeim orðum. Mér hefði þó verið nær að halda að fyrri atburðurinn hlyti að telj- ast skelfilegur, en hinn síðari fyrst og fremst gleðilegur, þó auðvitað sé mér ljóst að málið er flóknara en svo. Það kann að vera heilmikil dyggð að efast í sífellu um allt, en varla um þetta? Aðdáun Marðar á því hvernig ÁB haldi „eigin persónu- sögu“ utan við málin, „með verkfærum frásögunnar og skáldskaparins" verður harla spaugileg ef nöfn og efnisatriði í sögunni, ásamt undirfyrirsögn, eru skoð- TMM 1993:3 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.