Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 89
Néstor Taboada Terán
Fallbyssan frá Punta Grande
Háslétta án endimarka, stjómlaus og ofsafengin
eins og eldur. . .
OSCAR CERRUTO
— Ef stórlandeigendumir tækju nú allt í einu upp á því að vilja taka aftur
frá ykkur landið, með hvaða vopnum ætlið þið þá að verjast? spurði
meistari Melitón og lagði frá sér buxumar sem hann var að sauma.
Og indíánarnir sem voru að hlusta á hann svömðu einum rómi:
— Með rifflunum sem ríkisstjórnin gaf okkur.
Frá „Glæsileiki — Klæðskeravinnustofa Melitón Mercado“ (eins og
lesa mátti á auglýsingaspjaldi á hurð fyrirtækisins) mátti sjá aðaltorgið í
Punta Grande (Achacachi á máli Aymara). Torgið státaði af nokkmm
kyrkingslegum trjám og mikilfenglegu minnismerki reistu til minningar
um Andres Santa Cmz Calahumana, merkasta son héraðsins. Hann hafði
verið kynblendingur, móðir hans indíáni og faðir hans spænskur, mikill
hvatamaður að sameiningu Perú og Bólivíu, þekktur sem Marskálkurinn
af Zepita vegna ósigurs síns í Yungay. Mitt á milli lágreistra húsa með
stráþökum, sem hýstu tuttugu og tvö þúsund íbúa, risu byggingar Ráð-
hússins (fyrir aftan það tum Matriz-kirkju), Undirhéraðsstjórabústaður-
inn og, eins og óhjákvæmilegt var, glæsilegt Prestssetrið. Mjóar götumar
varðveittu enn hinn sérkennandi spænska stíl sinn. Bæjarbúarnir og
indíánamergðin, „fjalla-dýrkendur af háslétmnni og fískimenn frá bökk-
um áa og vatna“, röltu óhindrað um torgið og á sunnudögum komu allir
saman á frjálsa markaðnum. Frá og með 1953 höfðu stórlandeigendurnir
TMM 1993:3
87