Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 96
var alveg óhjákvæmilegt að loka búðinni og útvega nokkrar flöskur af bjór. Um það leyti sem fór að myrkva var allt endanlega umsamið.Indíán- arnir borguðu átta milljónir bólivíana og tuttugu og fjórar flöskur af bjór. Og þar sem eftirmiðdagurinn var brennandi heitur og sólríkur rann allur bjórinn ljúflega niður. Meistari Melitón vildi engin skjöl undirrita. Þeir héldu ákafir áfram að skrafa fram á nótt. Umræðuefnin sem ánægður skraddarinn hafði á takteinunum voru óendanleg. Það hafði einnig losnað um málbeinið á indíánunum, sem létu ekki sitt eftir liggja en sögðu meistara Melitón frá því að peningunum hefði verið safnað í gegnum samskiptanet þeirra eins og venja var þegar mikið lá við. Og til þess að ekki yrði um að ræða nein vandræða eftirköst frá óánægðum félagsmönnum höfðu þeir látið kjósa um málið á fulltrúafundi. í skjóli nætur fluttu indíánarnir feng sinn í burtu, hálf slompaðir og óséðir vegna þess að meistari Melitón og serafinn Gerania höfðu komið þessu þannig fyrir. Þeir urðu að draga fallbyssuna hægt og bítandi á eftir sér (því þeir gátu ekki lyft henni á bakið eins og kornabami, eins og þeir hefðu helst viljað) í gegnum úthverfi bæjarins, alla leiðina að húsagarði Héraðssamtaka smábænda, þar sem henni var komið fyrir og gætt vandlega. Hjólin skildu eftir sig djúp för í moldarvegi bæjarins. Þegar dreypifórnirnar höfðu verið færðar hófst hópganga mikils fjölda smábænda af hásléttunni framhjá fallbyssunni og hélt áfram dögum saman. Ungu mennirnir virtu vopnið fyrir sér í hljóðri aðdáun og gömlu mennirnir með þöglum drunga. Leiðtogar þeirra bundu skyndi- lega enda á hópgönguna af hræðslu við að stórlandeigendasamtökin og fúllyndir fyrrverandi stórbændur kæmust á snoðir um fallbyssuna og söfnuðu saman peningum og yrðu sér úti um aðra, jafn góða eða betri. Það hefði þýtt endinn á hugmyndunum um frelsi og jafnrétti sem þeir ólu í brjóstum sér. Meistari Melitón afhenti bæjarstjóranum jakkafötin og eins og um hafði verið samið greiddi Huallata Berríos reikninginn. ,,Það leikur enginn vafi á því að hamingjan hefur verið mér hliðholl þessa síðustu daga. Jafnvel hann Chullpa er búinn að borga mér ...“. Og heillastjömu sinni til heiðurs skellti hann í sig nokkrum bjómm. Aðstoðarmaður hans birtist nú með litlu indíánastelpuna sem hann hafði rænt (greyið var alveg búin að vera), og þau voru bæði svo þyrst og hungruð að það gekk lygi næst. Eftir að hann hafði gert illkvittnislegt grín að þeim svolitla smnd, 94 TMM 1993:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.