Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 44

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 44
GOTTSKÁLK ÞÚRJENSSON Upprunalegu höfuðdygðirnar (viska, hugrekki, hófstilling og réttlæti) eru elstar og eiga rót að rekja til heimspekiskólanna í Aþenu á fjórðu öld fyrir Krist, einkum Akademíunnar, eins og kenningar þess skóla birtast í Ríkinu eftir Platon. Þar er litið svo á að hver „hlutur“ (í víðasta skilningi, þ.m.t. húsdýr, verkfæri, skynfæri) eigi sitt eiginverk, ergon, eða hlutverk. Eiginverk- ið er það verk sem hluturinn sinnir einn eða sinnir betur en aðrir. Dygð, arete, hlutarins er þá sá dugur eða dugnaður sem hann sýnir er hann sinnir sínu hlutverki af kostgæíhi. Grísku höfuðdygðirnar íjórar eru fýrst nefndar í Ríki Platons, ekki sem dygðir einstaklinga, heldur sem dygðir fyrirmyndar- ríkisins, hugsmíðar Sókratesar. Samkvæmt kenningunni, eiga höfuðdygð- irnar að vera til staðar í mismunandi mæli hjá ólíkum stéttum ríkisins. Viskan á að búa með valdastéttinni, hugrekkið með hermönnum, hófstill- ingin bæði með peningamönnum og hermönnum, en þessar þrjár stéttir (sem einnig eru manngerðir) mynda fýrirmyndarríkið. Réttlætið er síðan að hver stétt/manngerð sinni sínu og sé ekki að vasast í verkum hinna. Skipt- ingu ríkisins í þrjár stéttir eða manngerðir má líka, samkvæmt Sókratesi, yf- irfæra á mannssálina sem þá skiptist í þrjá hluta: rökhugsun, skap og löngun. Samkvæmt þessu stjórnar rökhugsun sál stjórnarmanna, skap sál hermanna og löngun eða ástríður sál kaupmanna. Sál einstaklingsins er því innréttuð líkt og útópískt ríki, og ríkið sem sál einstaklingsins. Því er réttlætið í sál ein- staklingsins einnig það að leyfa ekki neinum hluta sálarinnar að vinna verk sem undir annan hluta heyrir. Þess í stað skal vera góð regla á starfsemi hinna þriggja sálarhluta í réttlátum manni. Hann á að stilla saman hlutana eða þættina þrjá eins og strengi lýrunnar: háan, lágan og miðstreng. Þótt fram- setning mín á þessari forngrísku sið- og samfélagsfræði sé einfölduð, og ekki hafi verið minnst á kenningar Aristótelesar, sem þó eru allrar athygli verðar, leynir sér varla hve framandlegar þær eru fyrir íslendinga, enda námu þær land hér í fyrradag, ef svo má segja, með fýrstu íslensku þýðingunum á ritum Platons og Aristótelesar.4 Kristnu höfuðdygðirnar trú, von og kœrleika má hins vegar eigna Páli postula í Nýja Testamentinu (lKor 13:13), en þær tengjast allnáið hebreskri og kristinni boðorðasiðfræði. Þessar þrjár dygðir hafa strangt til tekið enga merkingu utan sinnar bóklegu guðstrúar: trúin er trú á guð og ritninguna, vonin er von syndugs manns um að öðlast guðs miskun, kærleikurinn er kærleikur til guðs og guðs orðs. Grísku heimspekidygðirnar fjórar höfðu í upphaflegri mynd enga augljósa guðffæðilega skírskotun. En eft ir að kristnir kirkjufeður, ekki síst Tómas frá Akvínó (1225-1275), höfðu lagað þessar fjórar dygðir að guðfræðikerfi Rómakirkju, með því að fjölga höfuðdygðun- um í sjö, voru þær framvegis einnig skildar kristilegum skilningi. Hin kristi- lega viska varð sú andlega spekt sem fæst af lestri ritningarinnar, hið 42 www.malogmenning.is TMM 2000:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.