Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 46
GOTTSKÁLK ÞÓRJENSSON áttina að lífinu eins og því er lifað og hefja vandamái þess upp til þeirrar virð- ingar sem þeim ber. Hinn tvíþætti sögulegi arfur í formlegri siðfr æði sem að ofan greinir, hinn gríski og heimspekilegi og hinn rómverski og trúarlegi, eru ólíkir að uppruna og gerð, en eiga það þó sameiginlegt að vera aðeins einn þáttur í miklu veiga- meiri kenningakerfum, eða dogmata. Við þennan arf hefur síðan bæst mikið farg nútímaheimspeki og stjórnmálakenninga ýmis konar, sem allt setur fram einhvers konar dygðir og boðorð í bland við altumfaðmandi kenningar um eðli og örlög mannsins. Afleiðingin af þessum hrærigraut kenningakerfa varð sú að heimspekingar á nýöld tóku að reyna að gera siðferðisreglur rök- rænni og vísindalegri. Tilraunir Immanuel Kant (1724-1804) í þessa veru eru sennilega öfgafyllstar, en siðrænir útreikningar nytsemdarhyggjumanna eins og Johns Stuart Mill voru einnig svo flóknir og byggðust á svo almenn- um forsendum að þeir komu að litlu gagni við raunverulegar aðstæður. Tvö risakerfi sem tókust á í miklu og köldu stríði alla tuttugustu öldina eru kapít- alismi og kommúnismi. Fyrra dogmað prísar einkahagsmuni og dygðir sem auka enn á tilgangslausa auðsöfhun og ofneyslu borgarbúa á Vesturlöndum, en hatast við hvers konar félagshyggju sem vill sinna fátækum heimafýrir og erlendis. Síðara dogmað prísar tilgangslausa og oft hræsnisfulla sjálfsafheit- un flokksbundinna öreiga og hatast við hvers konar eðlilega umhyggju fýrir eigin sérhagsmunum. Effirá að hyggja er ljóst að hvorugt kerfið gengur eitt og sér, og því hafa þau í raun blandast hvort öðru, í trássi við vilja kennifeðr- anna. En eftir stendur siðff æði þversagnakenndra boðorða sem kallast á hás- um rómi í vitund nútímamannsins. Þegar allt þetta er haft í huga, er kannski ekki að undra þótt maður veigri sér við að hugsa um dygðir og kenni jafnvel leiða frammi fyrir orðinu sjálfu. Fyrir tveimur áratugum eða svo urðu tímamót í umræðu siðffæðinga um dygðina. Einkum var það engilsaxneskur háskólaprófessor, Alasdair Macln- tyre, sem varð til þess að endurvekja áhuga annarra siðffæðinga á dygða- ffæðum. Hann benti á að nútíminn hefði erft margar og ólíkar hefðir og hefðabrot í siðffæði, stundum ósættanleg, úr ýmsum áttum.7 Því hafi til- raunir manna ff á því á upplýsingaöld til þess að reisa á slíkum grunni verald- legar siðferðisreglur verið dæmdar til þess að mistakast. Hann taldi að vestræn menning yrði að leita aftur til uppruna síns, til þess að finna ástand þar sem siðferði og samfélag eru ennþá órofin heild. Hann fann slíkt ástand í því sem hann kallaði „klassíska“ menningu, það er í hellenískri menningu fornaldar, í íslenskri og írskri menningu miðalda og í menningu endurreisn- artímans. Samkvæmt honum var það fyrst á nýöld sem siðffæðin varð við- skila við samfélagið og fékk á sig mynd reglna sem voru svo almennar og slitnar úr tengslum við lífið í raunverulegum samfélögum, að þær voru ekki 44 www.malogmenning.is TMM 2000:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.