Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Síða 83
32. SÖNGUR
Þessi ég gef nú þarfleg ráð,
þeim ég við örðugleik hef náð
ykkur í vanda að vara.
Næga þó visku vart ég á
varkárni til að gefa þá
ykkur þeim eftir að fara.
Þetta og allmargt annað hér
í einsemd minni ég hugsa mér.
Fals er ei mér í munni
né heldur rugl í ráðafans,
þau renna af vörum gamals manns,
sannleikans sanna brunni.
Ljóðið Martín Fierro skrifaði skáldið José Hernández í Argentínu á árunum 1872-1879. Það er eitt
mikilvægasta bókmenntaverk Argentínumanna og tvímælalaust það Ijóð sem mesta umfjöllun
hefur fengið í landinu. Ástæða þess er að Martín Fierro er þjóðfélagsádeila sem tekur á lífi „el
gaucho" eða kúreka argentísku sléttunnar sem neyddist til að afsala sér firelsi sínu og
einstaklingsvitund á 19. öld. Höfundur mótmælir þeirri kúgun og vanrækslu sem kúrekar máttu
þola af hendi landeigenda, hermanna og argentískra stjórnvalda, sérstaklega eftir að einræði
herforingjans Rosas sleppti árið 1852 og við tók stjórnmálastefna sem kennd var við framfarir
(política de progreso). Hún byggði á forsendum borgarbúa en tók hvorki tillit til
landsbyggðarinnar né minnihlutahópa sem máttu sín lítils.
Alþjóðleg skírskotun ljóðsins er ótvíræð og innihaldsins vegna má enn nota það til varnar
minnihlutahópum hvar sem er í heiminum. Vinsældir þess eru líka í samræmi við það og hefur
ljóðið verið þýtt á annan tug tungumála.
Martin Fierro hefst með óði til fortíðarinnar og lýsir því hvernig söguhetjan bjó f sátt og
samlyndi við umhverfið ásamt konu og börnum þegar hann var neyddur í herinn, en slíkt er
nokkuð algengt í latnesku Ameríku og kallast „la leva“. Síðar lendir Martín Fierro í útistöðum og
verður manni að bana. Á flótta undan réttvísinni drepur hann enn fleiri en kemst undan til
indjána sem lægst voru settir í þjóðfélaginu.
Ljóðskáldið José Hernández fæddist í Chacra de Puyrredón árið 1834 og Iést árið 1886. Vegna
heilsubrests fluttist hann út á slétturnar þar sem hann vandist lífi kúreka. Fjölskylda hans var
klofin í afstöðu til trúar og stjórnmála. Móðir hans fylgdi andstæðingum einræðisherrans Rosas,
en faðir hans var fylgismaður Rosas eins og flestir kúrekar. Ölst Hernández upp við ráðandi
gildismat föður síns, bænda og kúreka. Hann lauk aðeins grunnskólanámi og á starfsævi sinni
sinnti hann ýmsum störfum Hann vann meðal annars sem hermaður, embættismaður og
blaðamaður. Fierro var ekki mikill hugmyndasmiður eins og landi hans skáldið Sarmiento sem
skrifaði um svipuð efni á sama tíma og tefldi saman siðmenningu og villimennsku (civilización y
barbarie). Skrif Hernández bera þess vitni að hann var góður áhorfandi og bar gott skynbragð á líf
og venjur kúreka sléttunnar. Ávöxturinn er Martín Fierro.
Næstsíðasti kafli ljóðsins, söngur 32 sem hér birtist í þýðingu Böðvars Guðmundssonar og
Margrétar Jónsdóttur, er ávarp kúrekans til sona sinna. Ljóðið er ekki mælt ffam af vörum þess
sem hefúr alla tíð breytt rétt og talar því af reynslu. Martin Fierro er dæmigerð andhetja og blóði
drifinn lífsferill hans stangast á við almennar hugmyndir um það hvernig á að lifa lífinu.
Heilræðavísurnar eru skrifaðar þar sem Fierro lítur um öxl, sér hversu grátt lífið hefur leikið hann
og vill koma í veg fyrir að synir hans feti sama veg.
M.J.
TMM 2000:2
www.malogmenning.is
81